Ljóðin mín

Á hverju kvöldi
hlusta ég
á nið öldunnar
í andardrætti mínum ….
Ég og hafið
förum að sofa
og verðum eitt..

JM 2017

Hamingjan hangir úti á þvottasnúru
Hún blaktir í vindinum
og það tekur í fúnar tréklemmur
sem hafa staðið af sér veturinn
Ég anda djúpt og hlusta
á lökin taka undir fuglasönginn
Mikið er gott að vera hér
við þvottasnúrurnar
þar sem hamingjan hangir
JM 2016

Rómantískt hugarflug
Við leiddumst út á gólfið
mér fannst ég reyndar svífa
tónarnir flæddu fram
úr hljóðfærunum
og líka úr hjartanu
við vorum í takt
á allan mögulegan máta
horfðumst í augu
djúpt inn í sálina
ógleymanlegt
og eilíft
Eitthað sem aldrei deyr
er það sem við áttum
í rólegum dansi
sem var okkar
og aðeins okkar
dýrmæt perla
í perlufesti
minninganna
JM 2014

JM 2016  …

Bleikur himinn
minnir mig alltaf á þig
klukkan tifar
lífið gengur
hjarta móður
leyfir sér að finna til
en um leið
að vera til
ástin mín
Eva mín
að eilífu

JM 2013

Ein hugrenning um “Ljóðin mín

  1. Takk Jóhanna ❤

    Þann fös., 24. apr. 2020, 05:04 JÓHANNA MAGNÚSDÓTTIR, skrifaði :

    > johannamagnusdottir posted: “ Á hverju kvöldi hlusta ég á nið öldunnar > í andardrætti mínum …. Ég og hafið förum að sofa og verðum eitt.. JM 2017 > Hamingjan hangir úti á þvottasnúru Hún blaktir í vindinum og það tekur í > fúnar tréklemmur sem hafa staðið af s“ >

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s