Guðspjall: Nú kom Jesús aftur til Kana í Galíleu þar sem hann hafði gert vatn að víni. Í Kapernaúm var konungsmaður nokkur sem átti sjúkan son. Þegar hann frétti að Jesús væri kominn frá Júdeu til Galíleu fór hann til hans og bað hann að koma niður eftir og lækna son sinn. En hann var dauðvona. Þá sagði Jesús við hann: „Þið trúið ekki nema þið sjáið tákn og stórmerki.“ Konungsmaður bað hann: „Drottinn, kom þú áður en barnið mitt andast.“ Jesús svaraði: „Far þú, sonur þinn lifir.“ Maðurinn trúði því sem Jesús sagði við hann og fór af stað. En meðan hann var á leiðinni ofan eftir mættu honum þjónar hans og sögðu að sonur hans væri á lífi. Hann spurði þá hvenær honum hefði farið að létta og þeir svöruðu: „Í gær upp úr hádegi fór hitinn úr honum.“ Þá sá faðirinn að það var á þeirri stundu þegar Jesús hafði sagt við hann: „Sonur þinn lifir.“ Og hann tók trú og allt hans heimafólk. (Jóh 4.46-53)
Náð sé með ykkur og friður frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Amen.
Þú mátt vita að. . .
Þú getur ekki verið öllu fólki allt.
Þú getur ekki gert alla hluti í einu.
Þú getur ekki gert alla hluti jafn vel.
Þú getur ekki gert allt betur en allir.
Þú ert mannleg/ur eins og allir aðrir.
Svo. . . .
Áttaðu þig á því hver þú ert, og vertu það sem þú ert.
Taktu ákvörðun hvað er í forgang, og gerðu það.
Finndu styrkleika þína, og notaðu þá.
Lærðu að keppa ekki við aðra,
vegna þess að enginn er í keppni við þig að vera þú.
Þá munt þú ..
Læra að samþykkja hversu einstök vera þú ert.
Læra að setja hlutina í forgang og taka ákvarðanir.
Læra að sýna þér þá virðingu sem þú átt skilið.
Og þú verður sprellifandi dauðleg vera.
Hafðu hugrekki til að trúa . . .
Að þú sért yndisleg, einstök vera.
Þú sért einstök persóna í mannkynssögunni.
Að þú hafir meira en rétt til að vera sá/sú sem þú ert.
Að lífið sé ekki vandamál til að leysa,
heldur gjöf til að virða og þú getir staðið með sjálfri/sjálfum þér
gegn hverri persónu eða hlut sem reynir að brjóta þig niður.
Það sem ég var að lesa hér, er texti sem ég féll fyrir á elrendri netsíðu og þýddi. Það sem kveikti hugrenningatengsl við texta dagsins var þessi setning: „Hafðu hugrekki til að trúa“ ..
og að vera „sprellifandi dauðleg vera“ ..
Á hverjum mánudegi opna ég „kirkjudagatalið“ á kirkjan.is, – til að finna guðspjallstexta dagsins. Það minnir pínkulítið á jóladagatal með súkkulaðimolum, nema í þessu tilfelli eru molarnir guðspjallstextar. Ég las áðan fyrir ykkur „mola“ dagsins eða texta ú 4. Kafla Jóhannesarguðspjalls, sem er texti þessa dags 21. Sunnudags eftir þrenningarhátíð. Molarnir eru frekar ólíkir og ég verð að viðurkenna að ég tengi misvel við þá. Stundum finnst mér þeir full beiskir, eins og mér þótti texti síðasta sunnudags, þar sem orðalagið var svona varla við hæfi barna, en hér í kirkjunni voru u.þ.b. tíu börn undir fermingaraldri. –
Ég tók það fram þá og geri það aftur nú, að auðvitað þurfum við að framreiða það í messu – eins og veislu – sem er við hæfi þeirra sem mæta. – Ég talaði um að molarnir væru súkkulaði, – ekki vilja nú allir borða súkkulaði eða þola sykur – svo við getum líka haft þá sem ávexti – að hver texti sé eins og epli eða appelsína ..
Þegar ég las textann, um mann sem var að missa son sinn, – og Jesú sem sagði: „hann lifir“ – þá minnti textinn mig á guðspjallstextann sem var lesinn 11. September sl. eða 16. Sunnudag eftir þrenningarhátið – um ekkjuna sem var að fylgja syni sínum til grafar – en Jesús kom þar að og sagði „„Ungi maður, ég segi þér, rís þú upp!“ Sá texti var í Lúkasarguðspjalli. Textinn í dag er frábrugðinn að ýmsu leyti – því þar er sonurinn ekki dáinn – heldur dauðvona. Jesús ávarpar hann ekki beint, heldur er það faðirnn sem fær að heyra: „sonur þinn lifir“ ..
Á undan hafði hann sagt:
„Þið trúið ekki nema þið sjáið tákn og stórmerki.“
Það kemur svo fram að syninum hafði batnað – á meðan faðir hans hafði verið að tala við Jesú og einnig að allt fólkið hans hefði tekið trú EFTIR það. –
Það er auðveldara að trúa – EFTIR að við höfum séð það, er það ekki. En er hægt að trúa því ef við höfum aldrei séð það? Myndum við ekki efast?
Hverju erum við beðin um að trúa – í báðum þessum „kraftaverkasögum“ um soninn sem rís upp frá veikindum sínum og syninum sem rís upp frá „meintum“ dauða sínum? – Við erum beðin um að trúa á lífið. „Hann lifir“ .. „Ég lifi og þér munuð lifa“ ..
Í bókinni „A course in Miracles“ stendur þessi fallega setning:
„Nothing real can be threatened.
Nothing unreal exists.
Herein lies the peace of God.“
„Engu sönnu verður ógnað.
Ekkert óraunverulegt er til.
Hér er friður Guðs fólginn.“
Engu sönnu verður ógnað .. lífið er satt og því verður ekki ógnað…
Ættingjar piltsins sem hjaraði við eftir veikindi hans, tóku trú – EFTIR kraftaverkið. En Jesús hafði sagt „Þið trúi ekki NEMA þið sjáið tákn og stórmerki“ ..
Það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvaða „tónn“ var í orðum Jesú, sagði hann þetta pirraður „Þið trúið ekki nema þið sjáið tákn og stórmerki“ .. eða sagði hann það í blíðlegum tón hins þolinmóða og skilningsríka? – Ætli við tökum ekki bara við því eins og við sjálf erum stemmd?.
Stóra áskorunin okkar er að trúa – án kraftaverkanna og án sannanna. Það er að trúa því að líf sé alltaf líf. Og þó að einhver deyi, höldum við samt áfram að trúa á lífið.
Allt fram streymir endalaust – ár og dagar líða… sögurnar um Jesú lifa, – og það eru óteljandi sögur sem hafa verið sagðar síðan að hann var krossfestur – grafinn og reis upp. –
Grípum aftur í texta ljóðsins sem ég las hér í upphafi: „Að vera sprellifandi dauðleg vera“ .. Það er orðinn einn af mínum uppáhaldsfrösum að segja „Lifðu lífinu lifandi“ .. Það er nefnilega svakalega misjafnt hvernig fólk lifir lífinu – eða lifir því ekki. – Þegar ég kom við í Skálholtsskóla í gærkvöldi sá ég konurnar í Vox Feminae sem voru sprellifandi, – þær voru að eta, drekka og vera glaðar! Hvað er það annað en að lifa? ..
Við getum tekið söguna af syninum dauðvona, og hugsað hana sem – einhverja von. Hvaða vonir eigum við árið 2016? – Hvað með frið, jafnrétti – bræðra og systralag? Heilbrigður heimur og heilbrigð jörð? Og hvað getum við, hvert og eitt okkar gert til að hrinda af stað bylgju vonar?
Hafðu hugrekki til að trúa ..
Það er mikilvægt að trúa – „no matter what“ eða skilyrðislaust, vegna þess að við vitum að trúin er ótrúlegt afl – sem næstum flytur fjöll. Hún flytur fjöll að því leyti að hún hjálpar okkur að bera hið óbærilega og hún getur hjálpað okkur til að lifa lífinu í gleði yfir því hversu lífið er í raun stórkostlegt og raunverulegt. Lífið er raunverulegt – þó við getum ekki „komið við það“ … allt fer vel að lokum, – og ef það er ekki að fara vel – þá eru það ekki lokin.
Margt fólk talar um það hafi sína barnatrú, -en barnatrúin ein og sér nær ekki utan um það þegar að fólk deyr. Sumt fólk trúir bara „að dauða“ .. þá verður það fyrir vonbrigðum og segir „ Guð er ekki til – eða Guð er ómögulegt fyrirbæri sem ég vil ekkert með hafa. Þegar við erum börn þá trúum við eins og börn, þegar við erum fullorðin trúum við eins og fullorðin.
Hvað ef að sonurinn í frásögu Jesú hefði ekki lifað af veikindin? – Hefði fólkið tekið trú?
Var hann ekki bara að sýna þeim tákn og stórmerki vegna þess að þau vildu sannanir fyrir eilífa lífinu? –
Þegar raddirnar hljómuðu í tónlist kvennanna í Vox Feminae sungu fann ég þær syngja inn í hverja frumu líkamans.
Þau sem trúa án sannanna – án skilyrða – jafnvel eftir að hafa misst allt sem þeim finnst nokkurs virði – hafa ekki lengur „barnatrú“ – heldur þroskaða og djúpa trú, sem er samofin hverri frumu líkama þeirra og gerir þau að sigurvegurum þessa lífs.
Það er saga í Biblíunni um góða og grandvara manninn Job, sem gerði allt rétt – en samt sem áður missti hann allt, heilsu, fólkið sitt og allt þessa heims. Job eignaðist sanna trú þegar hann áttaði sig á því að ekkert raunverulegt deyr – lífið deyr aldrei – og við skulum enda þessa hugleiðingu á hans orðum þegar hann ávarpaði Guð.
„Ég þekkti þig af afspurn – en nú hefir auga mitt litið þig“ ..
..Hafðu hugrekki til að trúa.