Hamingjusamlega skilin ..

Mamma mín missti manninn sinn, pabba minn, aðeins 42 ára gömul. –  Hún varð ung ekkja.  Ein besta og traustasta vinkona mín varð líka ung ekkja. –  Ég get (sem betur fer) ekki sett mig í spor ekkjunnar,  því ég hef ekki verið þar, en ég get sýnt samhug og staðið við hlið hennar. –

Vakning

Síðastliðið þriðjudagskvöld var athygli mín vakin á því að þegar við fráskildu konurnar værum að bera saman sorgarferli eftir dauða og skilnað, gæti það haft særandi áhrif á ekkjur. –  Það  hefðu, nokkrar haft samband við kirkjuna og sagt hvernig þeim liði með þetta, og vinkona mín, unga ekkjan sem ég talaði um í upphafi,   tók undir það.

Við lærum svo lengi sem við lifum og ég er þakklát fyrir að fá ábendingar, því stundum særum við ómeðvitað og hugsunarlaust, og meðan við erum að tala um eigin tilfinningar. –

Ég er ein af mörgum sem hef líkt sorgarferli eftir skilnað við sorgarferli eftir dauða, – eða borið saman – og hef stundum vitnað í vel þekkta gamanleikkonu sem talaði um það að það „væri svo vont að mæta líkinu“ ..  sem er náttúrulega hrikalega svartur húmor, en ég veit að hún vildi ekkert illt frekar en ég sjálf. –

Nei, enginn dó – þó að hjónabandið hafi dáið eða draumurinn um gott hjónaband. –  Það er í raun á þeim forsendum, með þann dauða í huga sem rætt var um sorgarferlið, en vissulega eins og áður sagði var farið býsna bratt og aldrei ætlunin að vera að „metast“ um sorgina – eða vera svo ósmekkleg að tala á þeim nótum sem ég minntist á áður. –

Við segjum ekki „mín sorg er meiri en þín sorg“ – og svo getum við upplifað sorg á svo ótrúlega misjafnan máta. –  Stundum kemur líka gömul sorg, sem ekki hefur verið unnið úr inn í sorg sem ætti ekkert að vera svona „voðaleg“ –  við getum ekki dæmt sorg annarra því við erum ekki að upplifa hana. – Og ef við höfum upplifað svipaða sorg, þá erum við á öðrum stað og í öðrum tíma í okkar ferli.   Við getum sýnt samhug, stuðning, samþykki, – en reglan er að dæma ekki.

Sorgarferli og skilnaður

Það er staðreynd að við skilnað fer í gang sorgarferli, stundum hefst það reyndar fyrir skilnað – um leið og fólk fer að efast um að hjónabandið standi á þeim fótum sem það átti að gera frá upphafi. – Um leið og traustið þrýtur, virðingin – ástin. –

En sorgarferli eftir skilnað er að sjálfsögðu annað en eftir dauðsfall – þó að bæði sé makamissir. –

Fyrir utan þennan megin mismun, að enginn deyr við skilnað, þá er mismunurinn líka sá að það eru aðrar tilfinningar sem eru oft sterkar.  Ef að um trúnaðarbrest er að ræða, þá eru höfnunartilfinning, reiði, afbrýðisemi, jafnvel hatur – tilfinningar sem eru mest áberandi, a.m.k. til að byrja með.  „Ástin“ verður blendin – hún verður eigingjörn; – „honum má ekki líða vel“ – „honum er nær“ … „af hverju ekki ég?“ „hvað er að MÉR?! hvað og ef að önnur kona er í spilinu, “ hvað hefur hún sem ég hef ekki?!“  …

Hver át MÍNA köku? ..

–  Þessi ást er eigingjörn því hún er frekar svona eins og eitthvað hafi verið tekið af þér sem þú ÁTT. – „Hver dirfist!?“…  Það að hann er farinn í fang annarrar, eða hefur ekki viljað ÞIG, hefur kannski ekkert með þig að gera. – Hann er e.t.v. bara með sín vandamál og kunni ekki að setja þau í farveg, ræða þau eða tilfinningar sínar? –  Kannski er hann fíkill og þurfti spennu, kannski pössuðuð þið illa saman frá upphafi, en ástin blindaði.  Það eru margar skýringar og það er mikilvægt að fara ekki í sjálfsásökun eða dómhörku gagnvart sjálfri sér.  Læra af þessu en ekki lemja sig.

„Clean Cut“

Besta ráðið i svona hugarástandi er að klippa sig frá makanum, – fara úr hans höfði og hans lífi yfir í eigið höfuð og eigið líf,  skref fyrir skref.  Umgangast af virðingu, – en eins lítið og þið komist mögulega upp með. –  Ef um börn er að ræða.  Þegar búið er horfas í augu við sárin og fara í gegnum sorgarferlið, getur verið grunnur að fara að umgangast á ný með vináttu, en ekki fyrr.

Ef aftur á móti ekki hefur verið um trúnaðarbrest að ræða, – heldur þið hafið vaxið frá hvort öðru, orðið fjarhuga og upptekin af einhverju utan hjónabandsins, – og hafið bara annað hvort tekið sameiginlega ákvörðun eða annar aðilinn hefur tekið af skarið, – getur samt myndast reiði.  Jafnvel reiði út í þann aðila sem tekur af skarið. –

Tómarúmið

Makamissi fylgir yfirleitt tómarúm, einmanaleiki, það að standa eftir ein. –  Það eiga þessar tvær tegundir sorgar þó sameiginlegt. –  Að koma heim og liggja í sínum helming og ekkert koddahjal, að ræða daginn – enginn maki til að deila með hugsunum sínum kaffibolla um morguninn og plana ævintýri framtíðar með. –

Það er m.a. það sameiginlega, – en ekkjan getur ekki leyft börnunum sínum að hringja í pabba og þarf að eiga við uppeldið ein og óstudd af maka. –  Það gerist þó líka í sumum tilvikum skilnaða – til feður/mæður sem láta sig hverfa og sinna ekki börnum sínum,  það er börnunum gríðarlega erfitt og þar upplifa þau oft meiri höfnun en það að pabbi þeirra bara dó og getur ekkert að því gert og vildi alveg örugglega vera með þeim.

Móðirin sem þarf að skýra fyrir barni sínu að pabbi sem var búinn að lofa að koma, en pabbinn svíkur,  á ekki sjö dagana sæla og fyllist oft enn meiri gremju út í föður barnsins. –

Það eru engar tvær manneskjur alveg eins og því upplifa engar tvær manneskjur sorgina alveg eins, tilfinningar eins og höfnun, reiði og ásökun geta líka legið í sorgarferli þess sem missir í dauðsfalli. Sjálf man ég eftir reiði-og  höfnunartilfinningu sem barn – þegar að pabbi dó. –

Viðurkenning á sorg

Í raun snýst þetta allt um að eflaust þráum við viðurkenningu á okkar sorg, við viljum að fólk skilji hvað við erum að ganga í gegnum, – að ekki sé sagt við okkur; „drífðu þig á í bæinn – ertu ekki að komast yfir þetta!? –    Sorgarferli tekur tíma, líka sorgarferli eftir skilnað. –  Það þarf að ganga í gegnum tilfinningaskalann.  Það er ekki verið að gera lítið úr sorg ekkjunnar, eða álíta að skilnaður sé „betri“ eða „verri“ sorg, slíkur samanburður gengur aldrei upp. –

Í skilnaði  þarf að aftengja sig þörfinni eða löngun til samveru með fyrrverandi maka,  sem er þarna á vappi einhvers staðar útí bæ – aftengja sig  ást  sem þarf alls ekkert að vera eigingjörn ást, bara raunveruleg og erfitt að slíta  – skoða sárin, skoða adragandann,  skilja af hverju verið var að skilja.  Við þurfum að elska OKKUR svo mikið að við séum tilbúin að heila okkur og til að fyrirgefa okkur og maka okkar að fór sem fór. –  Ekki ætla okkur að gera það með einhverri „barbabrellu“ – heldur gefa okkur tíma og þolinmæði. –

Takmarkið er að vera hamingjusöm og óska þess sama fyrir þann sem við vorum í hjónabandi eða sambandi við. – Þannig sleppum við takinu og  þannig „frelsumst“ við og aðeins þannig getum við haldið áfram og byrjað nýja göngu. –

Í Tiger er hægt (var a.m.k. hægt)  að fá hjartalagaða steina sem á stendur „Peace“ „Love“ „Luck“ og „Happiness“ –   kona nokkur gaf fv. manninum sínum og nýju konunni hans (þegar hún var tilbúin)  hjartastein með „Happiness“ – þakklæti þeirra var einlægt og tilfinningin var ekki síðri hjá þessari konu, það var eins og hún hefði gefið sjálfri sér hamingju með því að gefa þeim hamingjusteininn. –

Við förum frá því að vera hamingjusamlega gift yfir í því að vera hamingjusamlega skilin.

Enn eru tvö laus pláss í námskeið fyrir konur eftir skilnað – sem hefst á morgun 18. febrúar klukkan 9:00   „Lausn eftir skilnað“ – sjá http://www.lausnin.is  eða 617 3337

nánari upplýsingar  johanna@lausnin.is

  Tók mynd af þessum vatnsbrunni – á einum af göngutúrunum mínum. – Minnir okkur á uppsprettuna innra með okkur sjálfum! …

MEÐ FÓKUS Á HAMINGJUNNI

Við þurfum

1) Sýn

2) Fókus á sýnina

3) Trú á sýnina

4) Að vita hvað byrgir sýn

5) Hverju getum við breytt og hverju ekki?

– Ef sýnin er eins og mark, þar sem skráð er stórum stöfum: „HAMINGJA“ – hvaða tæki, næringu viðhorf, fólk o.s.frv. kemur þér að þessu markmiði – og hvað hindrar þig? –  Ath! .. Markið er ekki í fjarska,  heldur innra með okkur,  þess vegna er leiðin inn á við, en ekki út á við. –  (þessa formúlu getum við notað við svo margt, – settu það sem þig langar á markið. –

Annars er hamingja eins og stóra mengið sem inniheldur allt:

Heilsu, fjölskyldu, vini, heimili, efnahag, samfélag ….

Er að púsla saman hamingjunámskeiði þar sem hver og ein/n fer í gegnum þessa þætti –  fylgist með 😉 …

Ef þið viljið skrá ykkur og fá sendan póst þegar það byrjar, sendið mér póst á johanna@lausnin.is

Að borða sér til heilsu …

Það skal í upphafi tekið fram að auðvitað er þetta saga einnar konu.  Það er ekki þar með sagt að allir með MS eða aðra sjúkdóma geti náð þeim árangri sem hún náði,  en ég er nokkuð örugg um að mataræðið sem hún mælir með er ekki bara eitthvað sem hjálpar einni konu, heldur gætum við öll orðið heilbrigðari ef við bættum úr þessu. Hún talar líka um þetta sem forvörn. –

Hér segir Terry Walsh s.s.  sögu sína,  frá hvernig hún breytti mataræði sínu til að næra frumur sínar, – „Minding your mitochondria“ – en mitochondria sem þýðir víst  „hvatberi“ á íslensku, hvatberi  sem þarf að næra. –  (Læknar og líffræðingar vita meira um þetta).

Eftirfarandi eru bara punktar sem ég skrifa niður eftir fyrirlestri hennar, vinsamlega takið viljann fyrir verkið 😉 :

Heilinn þarf B1, B9, B12 og Omeg 3 og Joð, –  Sulfur og B6.  Þurfum andoxunarefni líka.

Án þessa mitochondira (hvatbera) værum við örsmá. –

Terry sýnir þarna hvað við erum að borða, – biður fólk að rifja upp hvað það borðaði mikið af ávöxtum og grænmeti sl. sólarhring,  en hún er augljóslega að gagnrýna mataræði Bandaríkjamanna.  Unna matvöru.

Hún mælir með „hreinu“ mataræði – eins og við tölum oft um hér á Íslandi; beint frá bónda.

Talar um „Hunter-Gatherer“ diet.  (Hér er diet mataræði en ekki megrun.)

Hunter er veiðimaðurinn,  sem veiðir dýr – (kjöt og fiskur).  

Gatherer er safnarinn – safnar berjum, ávöxtum, grænmeti, laufi,  fræjum o.s.frv. 

Í þessu forna mataræði  „Hunter Gatherer“ er betri næring en nútíma fræðingar hafa gefið upp sem heilbrigt mataræði.

Mataræðið skiptir máli fyrir heilbrigðið, heilafrumur bæði andlegt og líkamlegt, námsgetu, hegðun o.s.frv.

Hennar daglega mataræði samanstendur af:

3 bollar af grænum laufum  –  rík af vitamínum, B vitamínum sem vernda heilasellurnar, A og C styðja ónæmiskerfið og K  Steinefni sem virka með.

3 bollar  sulfur-ríku grænmeti – heilinn þarf á þessu að halda,  lifur og nýrun þurfa á þessu að halda, laukur, sveppir, aspas, brokkolí, kál o.fl.

3 bollar af litríku,  andoxunarefnin eru í hinu litríka;gulrótum, papriku,  rauðkáli, berjum, appelsínum, ferskjum

kjöt af dýrum sem borða gras, lífrænt ræktað kjöt  (lambakjötið okkar)

fiskur sem er ríkur af omega 3,  fyrir þroska kjálkans og heilans,  hún minnist á lax og síld

sjávarþari – söl,  Joð og selenium,  er nauðsynlegt fyrir heilann,  minnkar áhættuna á brjóstakrabbameini og blöðruhálskirtilskrabbameini – Joðið eyðir eiturefnum.

Borðum meira kál, ber -ávexti. –  Eftir því sem við veljum meira hollt og jákvætt inn í líf okkar verður minna pláss fyrir óhollt og neikvætt. – Þetta gildir bæði fyrir líkama og sál. –

Hegðunarvandamál og ofnæmi  eru oft tengd röngu mataræði

Hún segir þetta allt best sjálf! ..

Við eigum val, – hún velur að deila þessari reynslu sinni sem hún vonast til að sem flestir nýti sér.

Hún hvetur okkur til að borða okkur til upprisu.

Við eigum VAL,  hvert er þitt val?

Ef við borðum 9 bolla á dag af þessu holla, minnkum við hættuna á matarofnæmi, glútenóþoli og mjólkuróþoli.  Minnkum hættuna á asma, vefjagigt, hegðunarvandamálum o.fl. o.fl.

Í sjö ár fékk hún bestu mögulegu umhyggju, bestu lyf – en lífsgæði hennar voru orðin mjög slæm.

Hún fór að lifa á „Hunter-Gatherer“ mataræðinu.

Eftir 9 mánuði var hún farin að hjóla 18 mílur

Hún kallar sig kanarífugl í kolanámu ..

Dr. Terry Walsh SMELLIÐ HÉR til að SJÁ FYRIRLESTUR 

Fráskilin?

Finnst þér að þú hafir lagt þig alla fram í samskiptum við maka þinn  – en sitjir nú uppi fráskilin og í lausu lofti? –  Hvað gerðist eiginlega?

Varstu kannski að halda öllu saman, límið í fjölskyldunni og passa upp á að allt gengi upp, og var sambandið í raun orðið hálf vélrænt. –  Þið voruð e.t.v. bæði hætt að “nærast” í sambandinu og í staðinn fyrir að leita að ráðgjöf eða skoða orsakir fór annað hvort ykkar, eða bæði að leita að þessari næringu annars staðar?

Kannski kannastu við eitthvað af þessu, eða allt, en þú vilt ÖRUGGLEGA ekki fara í svona samband aftur, samband sem fjarar út eða endar með leiðindum. –

Kannski þarftu að læra að standa betur með sjálfri þér, setja mörk, elska þig, treysta á þig og virða þig,  trúlofast sjálfri þér,  áður en þú leggur út í annað eins ferðalag og hjónabandsleiðin er. –

Þú þarf a.m.k. að viðurkenna tilfinningar þínar og sársaukann áður en hægt er að heila sig. –

Kannski er sjálfsmyndin brotin, eða alveg týnd.

Kannski er það vegna þess að þú hefur lifað svolítið fyrir aðra en sjálfa þig, jafnvel  í speglasal og þarft að finna ÞÍNA sjálfsmynd, því það er auðvelt að tína henni í speglasalnum.  Speglasal sem nær e.t.v. aftur til uppeldis og viðmóts forfeðra- og mæðra sem hafa gengið mann fram af manni allt til þinna daga  um hvernig að þú ættir að hegða þér, koma fram o.s.frv. í dag, – árið 2012?

Hver ert þú, fyrir hvað stendur þú og hvað vilt þú? ..

Hvað átt ÞÚ skilið og hvað þarft þú til að skína?

Við hjá Lausninni – bjóðum þér stuðning og námskeið  við að leita að þínu svari eftir að draumurinn um hjónabandið dó,  átta þig á þinni spegilmynd og að standa með sjálfri þér. –   Smelltu þér á Lausnina og skoðaðu hvort að námskeiðið sem hefst 18. febrúar nk. er eitthvað sem hentar þér. –

Hugrekki og trú …

Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli.

Reinholdt Niebuhr

Fáar bænir segja meira í ekki fleiri orðum, eins og æðruleysisbænin. –

Ég verð að viðurkenna að í fyrstu þuldi ég þessa bæn án þess að tileinka mér hana, eða hugsa djúpt , og hugsaði ekkert endilega hvað væri þarna á bak við. –

Fyrsta orðið/hugtakið í bæninni er Guð, – því er þetta bæn til Guðs og með því erum við að biðja um hjálp sem er gjöf Guðs.-

Þessi Guð er sá/sú/það Guð sem er bara Guð út frá okkar sjónarhorni, eitthvað stærra okkur, eitthvað máttugra. Eitthvað sem bara ER. –  Eitthvað afl sem vill okkur vel og getur elskað okkur skilyrðislaust, en það er meira en við yfirleitt getum sjálf.  Þess vegna, m.a.,  er það stærra og meira.

Við getum líka séð þetta út frá því sjónarhorni að Guð sé ský, og við séum regndroparnir sem lendum á jörðinni, verjum þar tíma með öllum hinum regndropunum – og svo gufum við upp aftur og sameinumst skýinu. –  Skýið er alltaf stærra, en sama eðlis. Það harmónerar líka alveg við það að vera sköpuð „í Guðs mynd“ …

En útgangspunkturinn er að það segir ÞÉR enginn hvað og hvernig Guð er,  því að þrátt fyrir að við séum öll eins að því leyti að við erum líkami, sál og hugur, erum við öll einstök.  (Á sama hátt og engir tveir dropar eru 100%  eins í laginu)

ÞAKKLÆTI

Hinn djúpvitri höfundur Paolo Coehlo sagði einhvers staðar að ef við kynnum aðeins tvö orð, „hjálp“ og „takk“ á öllum tungumálum myndum við aldrei týnast. –   Stundum erum við eins og tveggja ára barnið sem er að reyna að reima á sig skóna, – við segjum „ég get“ en höfum ekki enn kunnáttuna.  Að sjálfsögðu höldum við áfram að reyna, en fáum hjálp þar til við höfum náð þeim þroska að geta reimað okkar skó. –

Að sama skapi, er mikilvægt að þakka fyrir, þakka fyrir það sem við höfum nú þegar og þakka fyrir þegar okkur er hjálpað. –

 Þakklæti elur af sér þakklæti. –

ÆÐRULEYSIÐ

„….æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt.. “

Við biðjum um gjöf æðruleysis (serenity) til að öðlast sátt eða samþykkja  það sem er og við getum ekki með nokkru leyti breytt. –  Æðruleysið er í mínum huga, ró, friður, jafnvægi, sátt, dýpt, kyrrð.  Það sem við fáum stundum með því að stunda yoga, bæn, íhugun, hugleiðslu, slökun, með sporavinnu, úti í náttúrunni o.s.frv. –

 Við þurfum öll að finna okkar leið að æðruleysinu. –  En munum að leiðin er inn á við en ekki út á við. –  Við þurfum að nálgast okkur en ekki fara frá okkur. –

KJARKURINN

„….kjark til að breyta því sem ég breytt …. “

Það þarf kjark til að breyta, kjark gagnvart sjálfum sér, kjark gagnvart innsta hring og gagnvart samfélaginu. –

Þegar okkur langar að breyta heiminum, þá byrjum við á byrjuninni: okkur sjálfum –  Það þarf hugrekki til þess.

Við þurfum að hafa nægilegt hugrekki til að ganga inn í óttann, og þá er gott að vita að við göngum ekki ein og þá leitum við aftur til Guðs sem gengur með okkur. –  Höfum nægilega trú til að gera það sem við óttumst. –  Horfast í augu við okkur sjálf og náunga okkar.  Náunginn getur verið einhver í fjölskyldunni, vinahóp eða eitthvað ókunnugt fólk. Fólk sem þú býst við að leggi dóm á það sem þú ert að gera. –  Við getum einnig verið okkar hörðustu dómarar og því þurfum við að mæta eigin dómhörku með hugrekki. –  Þá er gott að hafa Guð með sér, því að Guð elskar skilyrðislaust. –

VAL

Samfélagið tekur okkur ekki endilega vel þegar við förum að fella af okkur hlekki skammar og ótta. –  En við getum valið á milli frelsisins að vera við sjálf og fangelsins að þurfa að lifa eftir því sem aðrir vilja og segja okkur. –  Nú eða eftir því sem við HÖLDUM að aðrir vilji, því oft er það bara okkar mistúlkun eða ranghugmyndir um vilja annarra í okkar garð.

(Að sjálfsögðu verðum við að vera ábyrg gjörða okkar, og virða þau sem eru í kringum okkur, og sinna þeim skyldum sem við höfum tekið að okkur, sérstaklega þegar um börn er að ræða, og okkar frelsi má ekki felast í því að hefta aðra eða beita þá ofbeldi).

Kjarkurinn kemur frá kjarnanum, – frá hjartanu sem yfirleitt veit hvaða leið er best, en við þurfum að sjálfsögðu að vera viðstödd kjarnann til að heyra hvað þar hljómar. –  Ef röddin í höfðinu er hávaðasöm, eða raddirnar sem koma að utan, truflar það oft rödd hjartans. –  Oft er talað um „úrtöluraddir“ – og áhrif þeirra. –  Úrtöluröddin eða niðurrifsröddin er líka okkar innri rödd, sem stundum hlustar á úreltar eða útrunnar hugmyndir um okkur sjálf og segir með hásum rómi „Hvað þykist þú vera?“ –  „Þú getur ekki“ .. o.s.frv.  Hverju ætlar þú að trúa? –

„… og vit til að greina þar á milli.“

Hvernig greinum við á milli þess sem við getum breytt og þess sem við getum ekki breytt? –

Sumt er borðleggjandi;  Við getum ekki breytt fortíðinni, en við getum breytt viðhorfi okkar til fortíðarinnar. –

Þegar við glímum við  vandamál  þurfum við fyrst að sjá vandamálið, svo orsakir þess,  þá hvaða lausnir eru í boði – er hægt að breyta eða þarf ég að sættast við aðstæður mínar? –  Og hvað felst í sáttinni?

Við verðum að taka ákvörðun, og við þurfum vit til að velja hvort og hverju við getum breytt. –

Gremja yfir stöðu okkar, eyðir orku okkar og heldur aftur af eldmóði okkar.

Í stað þess að fyllast gremju yfir aðstæðum, samþykkjum við þær og byrjum frá þeim punkti að gera eitthvað í aðstæðunum. –

Einhver gæti farið að berja sig niður fyrir að vera búinn að koma sér í vondar aðstæður, hafa farið illa með líf sitt – hingað til – en það að berja sig niður byggir ekki upp –  Við berjum ekki sáttina í okkur.  Það hjálpar heldur ekki til að fara í ásakanagírinn, jú – það getur vel verið að það hafi verið komið illa fram við okkur, en það að fyllast gremju yfir því, bitnar ekki á þeim heldur okkur.

NÚIÐ

Að sættast við það sem er, þýðir ekki að við séum að gefast upp, heldur að samþykkja núið, – samþykkja og gera okkur ljósa stöðu okkar,  sjá raunveruleikann til að geta haldið áfram. –

Þetta er að doka við, viðra fyrir okkur útsýnið, spyrja til vegar og leita hjálpar ef það þarf, en ekki vaða áfram bara eitthvað út í bláinn og á sama vegi og kom okkur í villuna.

Með samþykkinu á því sem er, stöðvum við, sorterum það sem við þurfum að taka með okkur,  hvað ætla ég að taka með mér og hverju ætla ég að henda.

Með sáttinni erum við lögð af stað nýja leið, með því höfum við breytt án þess að breyta. –  Eins mótsagnakennt og það hljómar. –

Við getum breytt okkur, hugarfari okkar og sjónarhorni.

Ef við stöndum inní herbergi og horfum upp, sjáum við aðeins upp í loft, en ef við göngum nokkur skref, út um dyrnar sjáum við himininn. –

Ef við förum með þetta hugarfar inn í líf manneskju sem er búin að missa tökin á mataræði, peningum, sambandi, vinnu .. eða hverju sem er,  þá þarf hún fyrst að opna augun og samþykkja ástandið,  viðurkenna það en ekki afneita,  samþykkja það eins og það er og sættast við – fyrirgefa sjálfri sér fyrir að vera komin þangað sem hún ætlaði sér ekki,  skoða hvaða leið hún fór og hvað það var í hennar lífi sem leiddi til þess að hún villtist af leið.

Þá er farið í það að sortéra,  greina og átta sig á því hvað það er sem leiddi hana afvega og hvað það er sem hélt henni þó inni á veginum sem hún vildi. –

Það þarf að velja á milli þess sem er enn nýtilegt og þess sem er löngu orðið súrt og komið langt fram yfir dagsetningu.  Var jafnvel ónýtt frá upphafi. –

Svo þegar við höfum staldrað við, þá er að halda áfram með þann kjark að sleppa þeim hækjum sem í raun voru hlekkir sem héldu okkur niðri. –

Við þurfum að lifa í þeirri trú að Guð styðji við okkur,  þegar okkur finnst við vera að detta. –

Það má nota líkinguna af barni sem er að læra að hjóla án hjálparadekkja. Foreldrið heldur við, og svo einn daginn hjólar barnið og heldur að foreldrið haldi við, en um leið og það uppgötvar að foreldrið heldur ekki lengur,  þá missir það kjarkinn og dettur. –  En auðvitað getum við líka treyst því að mamma eða pabbi styðji okkur á fætur á ný. –

En hversu velviljuð sem foreldrar okkar eru, með allan sinn stuðning og elsku,   þá erum það alltaf við sjálf sem þurfum að læra að hjóla …

Majoneskrukka og tveir bollar af kaffi ..

Dæmisagan um hvernig við forgangsröðum hefur verið í loftinu í langan tíma.  Veit ekki hver er höfundur hennar, en það er heldur ekki aðalmálið.

Ég hef skrifað um hana áður,  t.d. þegar ég skrifaði bloggið um Brian Tracy og að breyta gömlum siðum í nýja. –

Það blogg má lesa ef smellt er HÉR.

En sjaldan er góð vísa of oft kveðin, og ég sá nýja og eiginlega bestu útgáfu af sögunni áðan, þar sem systir mín setti hana á facebook-vegginn sinn.

Eftirfarandi er mín þýðing:

„Þegar þér er farið að líða þannig að þig vanti tíma í sólarhringinn, til að sinna því sem þú þarft að sinna, – lífið er að verða of stórt til að ráða við, – mundu þá eftir majoneskrukkunni og tveimur bollum af kaffi.  (Þetta er þýðing frá Bandaríkjunum og majonesið er yfirleitt í krukkum hjá þeim! – fann margar útgáfur af þessu á netinu).

Prófessor stóð fyrir framan nemendur sína í heimspeki og var búinn að raða nokkrum hlutum fyrir framan sig á borðið.

Í upphafi tímans tekur hann upp,  alveg þegjandi og hljóðalaust, mjög stóra majoneskrukku og fyllir hana af golfkúlum.

Þá spyr hann nemendur sína hvort að krukkan sé full.  Þeir samþykkja það.

Þá tók prófessorinn upp kassa af steinvölum og hellti þeim í krukkuna og hristi hana. – Þær hrundu inn á milli golfkúlanna.

Þá spurði hann aftur hvort að krukkan væri full, og aftur fékk hann samþykki nemendanna.

Þá tók prófessorinn upp kassa með sandi og hellti í krukkuna, og auðvitað fyllti sandurinn upp í restina af plássinu.

Hann spurði enn á ný hvort að krukkan væri full, og fékk hátt og snjallt, einróma svar:   „JÁ“ ..

Prófessorinn hafði geymt tvo kaffibolla undir borðinu, og nú tók hann kaffibollana og hellti innihaldi þeirra í krukkuna sem auðvitað var pláss fyrir og lak inn á milli sandkornanna. –

Nemendurnir hlógu.

„Núna“ – sagði prófessorinn, og hláturinn hjaðnaði, „Langar mig að biðja ykkur að átta ykkur á því hvað þessi krukka þýðir í ykkar lífi.

Golfkúlurnar eru það sem er mikilvægast í ykkar lífi –

Guð, fjölskyldan, börn, heilsan, vinir, uppáhalds ástríða. Hlutir sem að, ef allt annað væri tapað, og aðeins þeir eftir, væri líf ykkar samt fullt.

Steinvölurnar eru hlutir sem skipta máli, eins og starfið, húsið og bíllinn.

Sandurinn er allt annað,  litlu hlutirnir“  – sagði hann.

„Ef þú setur sandinn fyrstan í krukkuna, hélt hann áfram, „Er ekkert pláss fyrir steina eða golfkúlur.  Það sama á við um lífið. Ef þú eyðir öllum þínum tíma og orku í litlu hlutina, hefur þú ekki tíma fyrir það sem eru þér mikilvægastir.“ sagði hann þeim.

„Þannig að veitið því sem er mikilvægt athygli, hlutum sem skipta ykkur máli.  Metið fjölskylduna ykkar.  Leikið við börnin ykkar.  Bjóddu maka þínum út að borða.  Verðu tíma með góðum vinum.  Það finnst alltaf tími til að taka til og þrífa heimilið og laga lekann í krananum.  Hugið fyrst að golfkúlunum – hlutunum sem skipta raunverulegu máli.  Veldu þinn forgang.  Afgangurinn er bara sandur.“

Einn af nemendunum rétti upp hendi og spurði hvað kaffið stæði fyrir.  (ég er nú líka forvitin um það!) 😉

Prófessorinn brosti og sagði, „Mikið er ég ánægður að þú spurðir.  Það sýnir að hversu upptekin sem þú ert í lífinu, er alltaf tími fyrir kaffibolla með vini þínum.“

Ég kemst ekki hjá því að tengja einmitt þessa kaffibolla við systur mínar, – svo það er sniðugt að ég skyldi reka augun í  söguna með þessari útgáfu á síðu Lottu systur! –  Þar að auki,  var ég búin að ákveða ákveðna lífstílsbreytingu (ef það má kalla það það) en það er að vera duglegri að heimsækja einmitt vini og ættingja, eða fá þau með á kaffihús. – Minna af fjarveru og meira af nærveru. 😉  … það verður m.a. mín forgangsröðun.

Annar endir á dæmisögunni, er að bollarnir tákni „Care and Love“ eða umhyggju og kærleika. –

Sami hlutur? ..

„Hvert fara brostin hjörtu?“ … Whitney Houston 1963 – 2012

Ég sá það á Facebook í morgun, eins og e.t.v. margir að hin fræga söngkona Whitney Houston er látin,  en hún var aðeins 48 ára og fædd 9. ágúst 1963.

Allir sem eitthvað fylgdust með fréttum af „fallega og fræga“ fólkinu og jafnvel fylgdust ekkert sérlega með þeim fréttum,  gátu séð og lesið að hún var löngu týnd á sinni leið. –  Ég er alls ekki vel inní því,  en veit að þar komu bæði áfengi og eiturlyf við sögu. –  Þannig að hún hefur verið í flótta frá sjálfri sér og lífinu.

Fyrir mér er þetta enn ein áminningin um að fegurð, frægð, auður og hæfileikar duga ekki til farsældar, og hvað þá að hamingjan felist í því að vera mjó. –

Hamingjan dregur vagninn, en ekki vagninn hamingjuna. – Það þýðir að hamingjan byrjar innra með okkur og ekki hægt að taka hana eingöngu utan frá. – Það verður aldrei annað en skammvinn sæla eða fix.   Það er að segja, það dugar svo skammt. –  Við drekkum ekki hamingjuna úr flösku,  við kaupum ekki hamingjuna í skóbúð,  við fáum ekki hamingjuna á prófskírteini og hamingjan er ekki tala á vigt. –

Við getum notað önnur orð þarna fyrir hamingjuna, eins og kærleikann og jafnvel Guð.  Það getur hver og ein/n ákveðið fyrir sig.

„Know thyself, and thou shalt know the Universe and God “ „Þekktu sjálfa/n þig, og þú munt þekkja alheiminn og Guð“ ..

Ef við erum á flótta frá sjálfum okkur, er vonlaust að þekkja okkur sjálf. –

Ef við lærum ekki innra verðmætamat, – að meta okkur án ytri mælikvarða, átta okkur á því að við erum verðmæt, „no matter what“ – eða hvað sem að utan kemur.   Ríkidæmi okkar getur falist og felst að vissu leyti í reynslu okkar, en við getum farið illa með það ríkidæmi, alveg eins og hið veraldlega ríkidæmi. –

Whitney Houston var falleg sál, ótrúlega verðmæt – eins og við öll. – Fyrsta lagið sem kom í hugann þegar ég sá þetta „RIP Whitney Houston“ – var „I will always love you“ – og spilaði það á Youtube.  Man eftir myndinni „The Body Guard“ og hef séð þá mynd oftar en einu sinni og oft hlustað á lagið á Youtube. –

En svo fann ég annað fallegt með henni,  „Where do broken hearts go?“ ….  Eflaust hefur það átt við þessa konu, að hjarta hennar var brostið,  en brostin hjörtu þurfa í raun bara að fá athygli okkar sjálfra,  við þurfum að hlú að okkur,  fara að elska okkur skilyrðislaust, án tillits til stéttar, stöðu, útlits, frama og frægðar. –

Að elska og samþykkja okkur sjálf er grunnforsenda eigin farsældar. –  Brostin hjörtu þurfa að komast heim. –

Fallega sál, far þú í friði. –

Frá þjáningu til þroska .. Lausn eftir skilnað

Þegar ég var barn og kvartaði, fékk ég oft svarið að þetta væru nú bara vaxtaverkir! – Ég hef aldrei fengið það á hreint hvort að vaxtaverkir eru raunverulega til eða ekki, en ég hef fundið það á eigin skinni að vöxturinn til þroska er sársaukafullur. –

Það er þegar við göngum á veggi, dettum í holur, rekumst á .. og þar fram eftir götunum sem við fáum oft stærstu tækifærin til þroska og vits. – Og kannski er lífið bara skólaganga til skilnings? –

Það er erfitt að setja sig í spor annarra án þess að hafa sömu eða svipaða reynslu. – Þess vegna er reynslumikið fólk, fólk sem hefur gengið í gegnum sorgina oft betri sálusorgarar en það sem hefur ekki gert það.

Sorgin getur verið allt frá litlum ósigrum upp í mikinn harm, og næstum því , eða algjörlega óbærilegan. –

Sem betur fer er engin manneskja það „menntuð“ í sorginni að hún geti sett sig í spor allra.

Ég á ýmsa misalvarlega  sorg að baki, og ein af þeim er skilnaður við maka – og það hef ég upplifað oftar en einu sinni, en þó með ólíkum hætti. –

Í þessum pistli ætla ég að fjalla um þann sorgarferil sem auðvitað verður þegar upp er staðið að þroskaferli.  Þessi pistill er blanda af minni eigin reynslu og reynslu margra kvenna sem ég hef fengið á námskeið, – en eitt slíkt námskeið verður haldið í Lausninni 18. febrúar nk. kl. 9:00 -16:00 með fjögurra kvölda eftirfylgni í hópum. – sjá nánari upplýsingar og skráningarform  www.lausnin.is

Ef að fólk fer ekki í samband á réttum forsendum í upphafi, hefst skilnaðarferlið við fyrstu kynni. –  Ástin er góð, en hún getur blindað – og við förum oft að gefa afslátt af okkur sjálfum, okkar þörfum, væntingum og gildum fyrir makann. –

„Við mættumst, horfðumst í augu og frá fyrsta kvöldi vissum við að við yrðum hjón. –  En það var svo margt sem við vissum ekki, og margt sem ég vissi ekki fyrr en eftir skilnað tuttugu árum seinna, og enn er ég að öðlast skilning á ástæðum þess að skilnaður var óumflýjanlegur. -“

Það voru tvö særð börn sem mættust, sem fóru að reyna að fylla upp í skörð hvers annars og sögðu „elskaðu mig“ – tvö börn að fullkomna sig með hinu. Tvö börn sem ekki kunnu að elska sig sjálf.   Í dag veit ég að það þarf tvo heila einstaklinga en ekki tvo hálfa.  – En það eru svo sannarlega ekki skilaboðin sem heimurinn veitir. – „Can´t breath without you“ .. segir í söngvunum. –

Þetta getur gengið svo langt í að uppfylla þarfir makans, að við setjum okkar eigin þarfir algjörlega til hliðar, og öfugt, við ætlumst til þess að makinn setji sjálfan sig til hliðar til að þjóna okkur. –

En hoppum áfram í tímann, hjónaband sem hefur varið í mörg ár, hjónabandsblómið er orðið skrælnað því að gleymst hefur að vökva, – allt annað en við og sambandið er sett í forgang.  Samveran er orðin vélræn og það sem er miklvægast af öllu, gagnvæm virðing og væntumþykja gufuð upp.

Það er erfitt að bera virðingu fyrir aðila sem ber ekki virðingu fyrir sjálfum sér. –  Sjálfsvirðing er því grundvallandi til að um gagnkvæma virðingu sé að ræða. –  Það er líka erfitt að elska, ef við elskum okkur ekki sjálf – ástin svokallaða er þá líka orðin eigingjörn ást en ekki kærleiksrík og óeigingjörn. „Þetta er MINN maki“ – og afbrýðisemin kviknar því við erum óörugg, og kannski ekki að ástæðulausu. –

Ef við gefum afslátt af eigin löngunum og þrám, þá erum við ekki sönn lengur, – ef við erum bara í að uppfylla langanir og þrár makans, eða það sem við höldum að hann vilji,  þá er sambandið orðið eins og þarfasamband en ekki ástarsamband.-   Svo fer þetta oft út í þann farveg að annar aðilinn fer að stjórna hinum, oft með kynlífi.

Kynlíf fyrir mér er meira en hopp upp í rúmi, eða úti móa. Slíkt er allt í lagi með, en eins og hjónaband byrjar að spinnast á fyrsta degi sambands (ef úr því verður) – lifnar kynlífið líka á fyrsta degi sambands. –  Kynlífið er samofið hversdagslifinu, hvernig við umgöngumst hvert annað.  Kynlífið er stök rós, gefin af engu tilefni. Kynlífið er nudd með olíu. Kynlífið er göngutúr í rigningunni, eða bíltúr í Borgarfjörðinn .. með okkar maka.

Maki sem upplifir niðurrif og andlegt ofbeldi yfir daginn, eða áhugaleysi yfir hennar/hans daglegu þörfum, – missir löngun til að stunda samfarir með maka sínum, – makinn verður argur þegar hinn neitar,  eða  kynlífið er á þeim forsendum að gera makann „góðan“ – en ekki vegna þess að þú finnur til löngunar .. kannski verði hann ekki eins leiðinlegur daginn eftir, eða jafnvel að hann verði skemmtilegur og sé tilbúinn að gera eitthvað skemmtilegt saman, eða bara ekki vera leiðinlegur? –  Kynlíf er rangt ef það verður skylda en ekki uppfylling eigin þarfa.  Eða í sumum tilfellum undirliggjandi hótun sem felst í því að það verður að gefa makanum að borða svo hann fái sér ekki að borða annars staðar!..

Sambönd þurfa neista, og það þarf tvo aðila í parasamband sem þurfa bæði að leggja til neistann og upplifa hann. –

Okkur á að þykja gaman að koma maka okkar á óvart, deila með honum því sem á dynur og koma hreint til dyranna. –

Óheiðarleiki er einn versti óvinur sambanda. –

Segjum að hjónabandið sé orðið eitthvað þunnt, – freistingarnar blasa við útum allt, og – jú, annar aðilinn – jafnvel bæði er farinn að líta aðila utan hjónabandsins hýru auga. –

Það er þarna sem á að segja STOP – og fara að skoða hjónabandið. – Leita hjálpar, leita að ráðgjöf.  Áður en sá stóri skaði er skeður að annar aðilinn fer og leitar í fang annarrar konu/karls hvort sem það er tilfinningalega eða líkamlega. –  Því þá er sambandið rofið, traustið er fokið út um gluggann.  Það er í raun hinn eiginlegi skilnaður.

Það þarf hugrekki til að tjá sig upphátt um það að maður sé óánægður í sambandi og sé farin/n að horfa í kringum sig til að fá útrás fyrir tilfinningar eða kynlíf eða bæði. –

Ástæðan fyrir hræðslunni við að segja er oft sú að í raun er fólk hrætt við að missa maka sinn. – Segir sjálfu sér að það vilji ekki særa hann með því að segja, en gerir sér ekki grein fyrir að sárið af vantraustinu er þúsund sinnum stærra og alvarlega en að koma heiðarlega fram. – Bæði er sárt og erfitt, en sannleikurinn er það sem frelsar.

Lygin endar iðulega og oftast með ósköpum.  Snjóboltinn verður að snjóflóði.

Það er nefnilega alls ekkert víst að sá aðili sem er að leita út á við vilji skilja. – Hann vill bara bæði eiga konu/mann heimili börn, OG einhvern til hliðar til að halla sér að.-

Þetta reyna margir, stundum vegna ófullnægju tilfinningalega og/eða kynferðislega,  eða vegna spennufíknar.  Framhjáhaldsfíkn er orð sem er til. – Þá er það bara spennan og fixið sem með því fæst sem sóst er eftir. –

Fíknin verður til eins og aðrar fíknir – vegna tilfinninga sem ekki hefur verið horfst í augu við, stundum bældra eða þeirra sem ekki hafa verið ræddar. Hér hef ég skrifað um framhjáhald með öðrum aðila, en það er líka hægt að „halda framhjá“ á annan máta, t.d. með áfengi, með vinnu, með eilífri fjarveru og vera ekki til staðar. –  Andleg fjarvera er ein tegund andlegs ofbeldis, – hún þarf ekki að vera „viljandi“ – en er samt vond fyrir þann sem fyrir henni verður. –

Ef að fólk er ekki tilbúið til að vinna í sér, sjá sár sín til að breytast, þá er eina leiðin að skilja,  sérstaklega ef að hjónabandið er orðið vont og skemmandi fyrir báða aðila og ef að börn eru í spilinu,  smitar það að sjálfsögðu til þeirra. –

Það er sorg að skilja, það er draumur sem deyr, – þetta átti ekkert að fara svona og kannski búið að hanga á fingrunum á brúninni í langan tíma. – Án þess þó að kalla á hjálp. –

Þegar traustið er brotið eru tvær leiðir, – ef að báðir aðilar eru tilbúnir að leita sér hjálpar má e.t.v. ná að tvinna sambandið upp á nýtt, en það þarf gífurlegan viljastyrk og auðvitað ást til þess. –  Hin leiðin er skilnaður og hvor um sig vinni í sér, að gera sig heila/n til þess að einmitt fara ekki með sjálfa/n sig inn í næsta samband á sömu röngu forsendum og í fyrsta sambandið.  Þ.e.a.s. án þess að vera búin/n að trúlofast sjálfum/sjálfri sér.-  Við segjumst vera tilbúin að elska, virða og samþykkja maka okkar þegar við játumst honum/henni, jafnvel frammi fyrir Guði.

 – En gleymum megin forsendunni, þ.e.a.s. að vera búin að játast okkur sjálfum. –   Komast í samband við okkur sjálf. –

Þegar við föllum á þessu sameiginlega prófi, þá þýðir ekki að dvelja lengi við það að við höfum fallið. – Við þurfum að skoða prófið, hvað gerðum við rangt – og ekki síður mikilvægt, hvað gerðum við rétt!  – Hvað gerði ég rétt, hvað gerði ég rangt.  Hvað gerði hann/hún rétt, hvað gerði hann/hún rangt. –

Munum endilega líka eftir því sem virkaði vel, var gleðilegt og byggði upp.  Kannski hefði mátt stækka þann hluta og minnka hinn? –

Allt hefur sinn tíma undir sólinni. – Það tekur tíma að syrgja og það er mikilvægt að leyfa sér að syrgja – sjá sárin, til að geta breytt og gert heilt. –  Þannig verður sorgarferli að þroskaferli, og við göngum frá þjáningu til þroska. –

Þroskanum fylgja vaxtaverkir – þá þekki ég – og því er mikilvægt að vera umvafinn vinum og fjölskyldu, og þeim sem við treystum – og það er gott að finna þau sem geta sett sig í okkar spor. –

„Það er gott að vita ég er ekki ein“ .. er algengasta uppgötvun sem konurnar hafa gert á námskeiðunum „Lausn eftir skilnað“ ..

Námskeiðin eru ætluð konum,  þar sem það er enn svo að konur eru viljugri og hugrakkari við að leita sér hjálpar. –  En það er í skoðun að bjóða sambærilegt námskeið fyrir karla, komi óskir um það.

Höfum það að lokum alltaf í huga, að það hjálpar okkur ekki að fara í ásökunargírinn (The Blaming game). – „Allt honum að kenna“ eða „Allt henni að kenna“ .. jafnvel þó að annar aðilinn hafi verið erfiðari, veikari, fjarlægari, brotið trúnað – þá er það yfirleitt skýringin að hann kann ekki önnur viðbrögð, þau eru viðbrögðin sem hann lærði í bernsku.  Viðbrögð sem einkennast af flótta eða feluleik. –  Þess vegna er það að við hjá Lausninni teljum að grunnástæða fyrir hjónaskilnuðum, eða að sambönd gangi illa eða ekki upp, sé meðvirkni.  Ástand sem lærðist á löngum tíma og hófst í bernsku, – jú einmitt þegar við vorum með vaxtaverkina og kvörtuðum og kannski þurftum við bara knús.

Knús á þig og takk fyrir að lesa. –

Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræðingur, kennari, ráðgjafi

www.lausnin.is

johanna@lausnin.is

námskeið – einkaviðtöl – fyrirlestrar

Sjáðu sárin og læknaðu þau ….

„You have to see your pain to change“ .. Geneen Roth

„To heal my wounds, I need to be brave enough to face them“  Paulo Coehlo.

Það er vont að líða illa og vita ekki hvað veldur. – Það er líka vont að líða illa og neita að horfast í augu við það sem veldur okkur vanlíðan. –

Stundum vitum við það.

Stundum vitum við það en þorum ekki að horfast í augu við það.

Stundum vitum við það ekki og þurfum að fá hjálp við að finna út úr því.

Við þurfum að skilja orsök sársauka okkar til að breytast. –

Við verðum að hætta að flýja hann, afneita, deyfa, svæfa ….

Hver er sorg þín?

Hver er sársauki þinn?

10553404_936503526365002_406861571316943881_n

 

 

Æðruleysið á lífsgöngunni ..

Mamma mín er til heimilis á hjúkurnarheimilinu Droplaugarstöðum og hefur verið það núna bráðum í tvö ár. – Ég heimsæki hana reglulega, svona u.þ.b. einu sinni í viku og svo erum við systkinin sem búum hér á landi með „heimsóknarkerfi“ – þannig að við skiptum helgunum á milli okkar. –

Það er erfitt að horfa upp á mömmu sína fjarlægjast.  Mamma er með heilabilun,  sem er kölluð „Vascular Dementia“ – sem má þýða sem æðaheilabilun, – sem er annar algengasti hrörnunarsjúkdómurinn á eftir Alzheimer.  Blóðflæðið minnkar til heilans og því fylgir m.a. að minnið fjarar út og fólk verður utan við sig og ringlað. –

Það er lán í óláni að mamma komst inn á þetta góða hjúkrunarheimili þar sem hún hefur stórt einkaherbergi með dótið sitt, með fullt af myndum af barnabörnunum og sína persónulegu muni. – Þar eru að vísu rúm frá stofnuninni, náttborð og nú það nýjasta; hjólastóll – sem mamma forðast að vísu eins og heitan eldinn.  Það er ótrúlega mikill sjálfstæður vilji í henni og stundum gerir hún hluti sem maður trúir eiginlega ekki að séu henni færir.

Starfsfólkið er að gera sitt besta, og sumt fer langt fram úr sér og má þar helst nefna hana Rósu, sem dekrar við fólkið og er alltaf eins og sólin.

Það eru alls tíu konur á deildinni hennar mömmu og mamma er alls ekki sú „veikasta“ og mamma er sem betur fer yfirleitt glöð og sátt. – Það léttir okkur ættingjum hennar heimsóknirnar. Stundum er hún þó þannig að hún getur ekki haldið sér vakandi og það er auðvitað erfiðara að heimsækja hana við þær aðstæður.

Mamma hefur oft verið þannig stödd að við höldum að það sé komið að því síðasta, en ég hef ekki lengur tölu á því hversu oft hún hefur komið „til baka“ – en það er á þessum tímum þegar hún er einmitt sem verst,  að það er erfiðast að heimsækja.  Og svo hefur það stundum bara erfið áhrif að heimsækja deildina og sjá hinar konurnar.  Því ekki eru þær allar eins sáttar og mamma. –

Í gær fór ég sem oftar að heimsækja mömmu og þá kom Vala dóttir mín með mér. Við vorum heppnar,  mamma sat frammi í setustofu og var í þokkalega góðum gír, svona miðað við hennar ástand. –

Ég þarf samt einhvern veginn alltaf að hjúpa mig svolítið og ganga þarna inn og út með æðruleysið í huga.  Með sáttina í hjartanu yfir því sem ég fæ ekki breytt,  en um leið þarf ég að minna mig á það sem ég FÆ BREYTT. –

Ég get ekki breytt lífi né ástandi móður minnar. – En eins og ég sagði við Völu mína á leiðinni í lyftunni niður.

„Við skulum nýta þetta til að átta okkur á mikilvægi þess að lifa lífinu lifandi!  “

Margir upplifa hjúkrunarheimili eins og biðstofu. – En hvað með okkur hin sem erum yngri, frískari, með heilann í lagi (eða svona að mestu leyti í lagi? ;-)) ..  Erum við nokkuð að lifa lífinu okkar, eins og við séum sitjandi á biðstofu, og eftir hverju erum við að bíða? –

Hvað er það sem hlammar okkur niður í sófann (ekki það að það sé ekki í lagi að velja sófann við og við, og njót þess að hvíla sig) – en svona almennt þegar sófinn er orðinn besti vinurinn? ..

Ég heyrði nýlega setningu sem hefur verið mér hugleikin,  „Put the happiness in front of the carriage“ – sem mér finnst gaman að þýða;

„Láttu hamingjuna fyrir framan hestvagninn“ ..

Og þá er hamingjan hesturinn sem við setjum fyrir framan hestvagninn, – enda myndum við aldrei setja hestinn fyrir aftan og ætlast til að vagninn drægi hestinn.

Flestir þekkja söguna sem sögð er af indjánahöfðingjanum og baráttu úlfanna tveggja.

Annar þeirra er:
ótti, reiði, öfundsýki, græðgi, hroki, sjálfsmeðaumkun, rógur og svik.

Hinn er:
Gleði, kærleikur, auðmýkt, tillitsemi, gjafmildi, sannleikur og samhugur með öðrum.

Eitt barnanna spurði: Afi, hvaða úlfur vinnur?

Sá gamli horfði alvörugefinn á barnahópinn og sagði:

Sá sem þú fóðrar.

Ef við breytum nú sögunni og setjum hesta í stað úlfa,  hvor hesturinn er líklegri til að dafna og fyllast eldmóði til að draga vagninn? –

Hvað dregur okkur sjálf áfram og hvað dregur okkur niður? –

Hvað er á okkar andlegu næringartöflu? –

Erum við að næra okkur með illmælgi, öfund, skömm, samviskubiti,  baktali, ofbeldi, reiði, neikvæðni, illsku, gremju, ótta, hatri, dómhöru og fleiru í þessum dúr? …

Eða nærum við okkur með þakklæti, jákvæðni, hugrekki, sátt, elsku, vinarþeli, samhug, samvinnu, trú, von og kærleika? …

Við þurfum væntanlega ekki mikið vit til að greina þarna á milli, hvort er okkur hollara og hvort veitir okkur meiri hamingju. –

Við vitum öll að hreyfing og hollur matur er góð fyrir heilsuna, en …… en hvað? –  Við þurfum að vilja og við þurfum að taka skrefin ..

Við sækjum nefnilega í margt af þessu sem er vont og dregur úr okkur, alveg eins og við sækjum í það sem er óhollt fyrir frumur líkamans.  Sækjum í það sem fitar okkur þó að við viljum ekki fitna og séum e.t.v. í hættulegri yfirþyngd! ..

Ég held að þetta sé það sem Eckhart Tolle talar um, þegar hann talar um að næra sársaukalíkamann.  Við erum að næra sársauka okkar í stað þess að næra hamingju okkar.   Tolle segist t.d. vera hissa að í veröld sem stærstur meiri hluti mannkyns vill frið en ekki stríð,  vill ofbeldislausan heim, séum við að kaupa okkur inn á ofbeldismyndir. –

Nýlegar voru hugmyndir á lofti að fjöldamorðinginn Anders Breivik hefði orðið fyrir áhrifum af ákveðinni bíómynd. – Við vitum alveg að fjölmiðlar, tölvuleikir,  kvikmyndir o.fl.  hefur áhrif á undirmeðvitundina.  Það hefur áhrif til ills,  en sem betur fer hefur það líka áhrif til góðs.  Það er til fullt af „feel-good“ myndum,  sem skilja mann eftir með sólina í hjartanu. –

Ég er ekki að tala um að við eigum að láta eins og ofbeldi þrífist ekki, – en við eigum ekki að fóðra það. –

Alveg eins og með úlfinn – sá sem þú fóðrar vex og dafnar og sá sem þú sveltir veslast upp og deyr. –

Þetta gildir um allt, þetta þekkja þau sem eru með „græna fingur“ – og huga að garðinum sínum og þetta gildir að sjálfsögðu um börnin okkar, –  ekkert þurfa börn, eða fátt, frekar – en athygli frá foreldrum sínum. –  Þau visna ekki og deyja við athyglisskortinn og áhugaleysið, en eitthvað innra með þeim veikist þegar þau fá ekki athygli.  Ég las í bók sem ég kynnti mér á námskeiði í HR, sem ber heitið „Well-Being“ að mikilvægi athyglinnar er sannað.  Það sem er mikilvægast og í fyrsta sæti er:

Jákvæð athygli, þ.e. að taka eftir hinu jákvæða,

í öðru sæti er að taka eftir hinu neikvæða

og það versta er að veita EKKI athygli, eða að vera afskiptalaus með öllu.

–  Allir þurfa að sjást, og það er vont að upplifa sig ósýnilega/n.

Hamingjan og gleðin vill heldur ekki vera ósýnileg, hún þarf athygli og næringu til þess að geta dregið hestvagninn. –

Louise  Hay er þekkt kona, sem hefur skrifað margar bækur um hvernig hún vann sig út úr neikvæðri „forritun“ sem barn. Hún talar um sig sem 85 ára unga en ekki gamla, og  hefur notað þessa jákvæðu næringafræði. Hún hefur vanið sig á að virkja hugann til jákvæðni með því að fara með daglegar staðhæfingar,   eða  „affirmations“ –

Þessar staðhæfingar sem við þörfnumst  er ekki erfitt að finna, – þær eru andstæða þess niðurrifs, eða þeirra orða sem margir nota daglega og við flest ef ekki öll.  Niðurrifs og afneitunar á okkur sjálfum. –  Í stað þessa niðurrifs þurfum við að fara að samþykkja og það gerum við m.a. með jákvæðum staðhæfingum. –

Orð eru álög, eins og Sigga Kling segir í samnefndri bók.

Í staðinn fyrir að segja „Ég er lúser“  – segjum við  „Ég er sigurvegari“ ..  Við höfum val um að klæða okkur í annars vegar „Winner bolinn“ á morgnana eða „Loser“ bolinn .. Við getum fóðrað lúserinn í okkur og við getum fóðrað þann sem tapar.  –

Það er mikilvægt að þó að það gerist ekki nein barbabrella á einum degi, þá alveg eins og neikvæða sjálfstalið hefur e.t.v. komið okkur í neikvæðan gír á löngum tíma,  þá tekur jákvæða talið sinn tíma. – En það virkar ekki ef því er bara hætt.  Það þýðir ekkert að fara bara í jákvæðniátak í þrjá daga og svo búið.  Lífið er ekki átak,  kúr, eða spretthlaup,  heldur er lífið langhlaup.  Ég held það standi meira að segja utan á GH magazine! .. (Góði hirðirinn).   –

það hljóta allir að vera sammála hvorn úlfinn, eða hestinn þeir vilji helst fóðra.

En hvernig breyti ég gömlum vana, ef ég er búin/n að tala niður til mín og vera í sama hjólfarinu svona lengi?  –

We are what we repeatedly do. Excellence, then, is not an act, but a habit.“ – (Aristotle)

Ég fékk þýðingu á þessu frá Jóhanni Pétri Sturlusyni, sem einmitt hefur sérhæft sig í því sem kallað er breytingastjórnun og er með ráðgjöf þar að lútandi hjá www.stjornun.is , – en það á viðskiptasviði, – en það merkilega er að það sem virkar á einu sviði virkar venjulega á öðru líka! ..

„Endurteknar athafnir móta hver við erum. Yfirburðaárangur næst því ekki með skammtímaátaki heldur með venjum eða lífsstíl – Við erum skepnur vanans.“ 

Við upplifum oft að við séum föst, – við höfum ekki val, en við höfum a.m.k. val um viðhorf, við höfum val um andlega næringu, og líkamlega. Hvernig væri að byrja þar.  Breyta einu í einu?

Það er „win-win“  ástand að velja hið góða og jákvæða, vegna þess að það sem við segjum og gerum hefur ekki síst áhrif á okkur sjálf.

Þannig virkar bergmál lífsins,  við köllum  „þú ert  fífl“ í bergið og það endurómar til okkar.  Við köllum „þú ert frábær“ í bergið og það endurómar til okkar … við getum notað þetta með „winner“ – „loser“ .. hugtökin. –

Á sama hátt virkar t.d. gremjan, gremjan i garð annarra, – þegar við pirrumst á fólkinu í kringum okkur, höfum e.t.v lent í uppákomu og sitjum uppi með sárt ennið, sofum ekki, liggjum andvaka með gremjuna mallandi á meðan sá eða sú sem við erum gröm útí sefur kannski værum blundi. – Hver borgar þann reikning og hvaða áhrif hefur það á okkur að hafa svona leigjanda sem borgar ekki húsaleigu í höfðinu? –

Það þarf hugarfarsbreytingu til að tileinka sér og fóðra sig með því góða,  stundum þarf ákveðinn kjark eða hugrekki til þess.  Hugrekki til að stíga upp úr gömlum siðum og gömlum vana. –  Hugrekki til að segja upphátt:  ´“Ég er sigurvegari“ .. og það þarf trú. Það þarf sýnina, að sjá fyrir sér sigurvegarann og það þarf trúna til að trúa á hann, ef að við trúum því ekki af hverju ættu hinir að gera það? – ..

Við þurfum að standa upp og fara að ganga lífsgönguna,  lifa lífinu lifandi meðan við höfum tækifæri, orku og val – nýta okkur þann fjársjóð sem innra með okkur býr og kemur okkur áfram,  setja hamingjuhestinn fyrir framan kerruna og slá svo í! …

GUР gefi mér æðruleysi

Til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt

Kjark til að breyta því sem ég get breytt

Og vit til að greina þar á milli

Þakkir til allra þeirra sem hafa verið samferða mér hingað til á lífsgöngunni, sem hafa kennt mér, leitt mig og hvatt .. líka sem hafa verið mér erfið/ir, þvi að þar hef ég líka lært.

– Lífsins skóli færir okkur endalaus verkefni til að takast á við.

(Ég notaði þennan grunn sem fyrirlestur hjá Hafnarfjarðardeild Rauða krossins fyrir fólk í atvinnuleit.)