Stundum þurfum við að stoppa til að skynja lífið ..
Þessi pistill er skrifaður af „sjúkrabeði“ – já er með flensu, en ekki það illa haldin að geta ekki skrifað eða spekúlerað! – Pistillinn er innblásinn af videói með Paulo Coelho sem hægt er að sjá í lok pistilsins þar sem hann lýsir upplifun sinni af því að festa jeppa sinn í eyðimörk og hvernig hann og samferðafólk vann úr því. – Ég hef sjálf verið að nota svipaða líkingu, þegar ég hef verið að útskýra fyrir fólki setningu Eckhart Tolle:
“Accept – then act. Whatever the present moment contains, accept it as if you had chosen it. Always work with it, not against it.”
Þetta er líka það sem felst í sáttinni við aðstæður. – Það er ekki það sama og uppgjöf og langt í frá. – þetta er munurinn á að vinna með aðstæður en ekki gegn þeim. – Að gera það besta úr því sem komið er. – Það þýðir ekki að fara í að ásaka hvorki sjálfan sig né aðra fyrir að vera komin í ákveðnar aðstæður. – Það hjálpar engum, en við getum lært af aðstæðum, skoðað af hverju við erum komin þangað sem við erum komin. –
Hvað gerum við þegar við festumst í eyðimörk?-
Ekki að það sé algeng lífsreynsla fólks á Íslandi, en þetta getur átt við hvað sem er. Að lenda í hindrunum á lífsleiðinni, bæði raunverulegum og hindrunum hugans. –
Jeppi Paulo og samferðamanna festist s.s. í eyðimörkinni. – Þá talar hann um að gera það besta úr aðstæðum. –
„Surrender your self to God, but you do it with faith, – you are never alone“..
Þetta er svipuð upplifun og úr texta 23. Davíðssálms, „Þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert því þú ert hjá mér“ ..
Fólk segist ekki þurfa hjálp, en Paulo segist alltaf þurfa fólk, ekki vegna einmanakenndar heldur vegna þess að það er svo gott að hafa einhvern við hlið sér. –
Hann tekur þetta dæmi úr eigin lífi, – að lenda á eða í hindrun, – og eins og áður sagði gera það besta úr því sem komið er. – Njóta samferðafólksins, og íhuga líf sitt. – Það er í raun að sætta sig við aðstæður, og vinna þaðan úr þeim. –
„Every time I go astray please take me back“ er bæn Paulo til Guðs.
Texti sem ég nota sem bæn mína til Guðs er úr sálmabók
„Leið mig Guð eftir þinu réttlæti, gjör sléttan veg þinn fyrir mér því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhulta í náðum.“ –
Í þessum dimma dal sem við göngum, gengur Guð með okkur og býr okkur borð frammi fyrir fjendum okkar og sleppir aldrei af okkur hendinni. En við njótum ekki öryggis hans ef við finnum ekki fyrir því af því að við stoppum aldrei nógu lengi til að muna að við getum ekki barist ein heldur Guð/æðri máttur fyrir okkur og með okkur. –
Stundum þurfa hlutir að gerast til að við áttum okkur á að „við erum“ segir Paulo Coelho. – Við getum þotið í gegnum lífið án þess að stoppa og hugsa, eða veita lífinu eða sjálfum okkur athygli. –
Sjá betur í sögu Paulo:
–
Guð minn almáttugur! ..
Fyrirsögnin er algeng upphrópun, – yfirleitt þegar eitthvað alvarlegt hefur gerst eða hneykslanlegt jafnvel – og hefur sjaldnast eitthvað með Guð að gera, eða kannski allt með Guð að gera? – Gaman að Eckhart Tolle sem hefur sagt að hugtakið Guð sé ónýtt, en í raun sé allt hans spjall, spjall um Guð. –
En ég skil vel við hvað hann á – og ég held við vitum það öll og á Guði eru til álíka margar skilgreiningar og mennirnir eru margir og það talar hver og ein/n út frá sinni guðsmynd. –
Það er því rétt að ég taki hér fram að ég tala út frá minni guðsmynd, ekki fyrirframgefinni af reiðum Guð eða Guð dómhörku. – Guðsmynd mín byggist á Guði kærleika og samhygðar, „Guð í alheimsgeimi og Guð í sjálfri mér“ – sbr. ljóð Steingrímst Thorsteinsson, en að sjálfsögðu er þar aðeins um einn Guð að ræða en ekki tvo. –
Það eru margir sem velt hafa fyrir sér almætti Guðs, – af hverju deyja og veikjast börn ef Guð er almáttugur, af hverju er svona mikil sorg og af hverju svona mikið óréttlæti? –
Auðvitað hef ég líka velt þessu fyrir mér eins og margir aðrir, – en ég hef komist að minni niðurstöðu, og það kemst hver að sinni. – Sumir hafa komist að þeirri niðurstöðu að Guð sé bara hreint ekkert almáttugur, en svo er e.t.v. ekki til neitt sem heitir almáttugur, því að aldrei er hægt að uppfylla allar óskir, – eins og tekið er fyrir í kvikmyndinni „Bruce Almighty“ þar sem allir óska sér að vinna stóra vinninginn í Lottóinu.-
Almætti Guðs liggur – á allt öðru plani en að uppfylla allar óskir eða svara öllum bænum. –
Almætti Guðs liggur í hinu skilyrðislausa. –
Guð verður mér alltaf meiri og stærri vegna þessa eiginleika. Eiginleikans að fyrirgefa og elska án skilyrða. – Þar liggur almætti Guðs og þess vegna er m.a. talað um „Æðri mátt“ –
„Þekktu sjálfa/n þig, og þú munt þekkja alheiminn og Guð“ .. þessi „sjálfur eða sjálf þú, ert ekki það sem þú gerir eða framkvæmir, heldur barnið sem fæddist í þennan heim, barnið sem gat horft á fingur sér og dáðst að þeim án dómhörku – barninu sem hugsaði ekki „oh hvað ég er með ljóta og feita putta, eða hvað hafa þessar hendur gert til að vera stoltar af?“ – Heldur einungis virt fingur sína fyrir sér án þess að dæma og sem hluta af sjálfu sér. –
Ég held ég komist næst því að skilja elsku Guðs þegar ég lít til minna nánustu – og þá helst barnanna minna. – Sama hvað börnin mín gera, hvað þau starfa, hvaða einkunnir þau fá, eða hverju þau klúðra, elskan til þeirra er alltaf til staðar.. –
Eftir því sem við eigum auðveldara með að elska fleiri án skilyrða, svo ekki sé talað um okkur sjálf. Við þurfum ekki alltaf að sanna okkur, eða tilverurétt okkar til að þiggja ást, heldur aðeins að vera tilbúin að þiggja hana. Að við eigum fyrirgefningu skylda, við þurfum aðeins að biðja um hana. – Það gerum við með því að iðrast og vera auðmjúk. –
Lífið er flæði og Guð er flæði eða orka. Í Biblíunni er talað um „lifandi vatn“ og eilífa lind. – Það er talað um barmafullan bikar, sem þýðir það að hafa nóg, en ekki hafa fengið allt of mikið af verkefnum – eða vera yfirkominn af sorg eins og sumir hafa mistúlkað þessi orð í 23. Davíðssálmi.
Það er mikilvægt að stöðva ekki þetta flæði, en það stöðvast þegar við leyfum ekki tilfinningunum okkar að fara í gegnum okkur. – Þegar við leyfum þeim að taka bólfestu innra með okkur. – Þær verða eins og hrúður á sálinni. – Fyrirgefningin er ekki síst mikilvæg í eigin garð. – Ekkert okkar hefur lifað fullkomnu lífi, og við höfum e.t.v. eitthvað sem okkur líður illa með, – það hafa allir. – Það er mikilvægt að muna að það er þarna æðri máttur: Guð, sem er tilbúin/n að samþykkja þig eins og þú ert, en þú þarft líka að gera það sjálf/ur. – Þess vegna er oft talað um að fela okkur æðri mætti, þegar við viðurkennum þennan vanmátt okkar gagnvart sjálfum okkur og öðrum. –
„La, la, la, la Life goes on“ .. sungu Bítlarnir og margir textarnir þeirra er skemmtilega einföld lífsfílósófía. –
Hið ákjósanlega ástand okkar í lífinu er heilbrigði sem felst í jafnvægi og flæði. – Sumir segja að veikindi og vandamál séu stíflur, og oft hafa þessar stíflur myndast (og oftast) vegna tilfinninga, – athugið að barn í móðurkviði skynjar tilfinningar móður og börn skynja andrúmsloft á heimili. –
Heilbrigði og hamingja móður og föður og allra sem í kringum eru er því mikilvæg fyrir heilsu barnsins og þess vegna er líka svo mikilvægt að þó að foreldrar skilji að þau biðji fyrir hamingju hins, því að ekkert barn á skilið óhamingjusama foreldra. – Ég hef heyrt af fólki sem hefur óskað hinu óhamingju, – óskað barnsföður sínum eða barnsmóður óhamingju. – Þá erum við komin langt frá skilyrðislausri fyrirgefningu og kærleika og langt frá Guði. –
En við erum ekki almáttug, en það er gott að skilja þetta – að þegar við óskum öðrum óhamingju þá virkar það eins og bjúgverpill og getur hitt aðra á leiðinni. –
Guð óskar ekki neinum óhamingju.
Guð elskar þig og mig skilyrðislaust, hefur trú á okkur og allt sem við þurfum að gera er að taka á móti og segja „takk“
Já, þar liggur almætti Guðs. –
Ég talaði um ójafnvægi og óréttlæti í heiminum, – hinn hungraði heimur kemur þá oft upp í hugann, – hvers vegna er hluti heimsins að deyja úr offitu á meðan hluti er að deyja úr hungri? – Getum við eitthvað gert í því? –
Á meðan að auði heimsins er svona misskipt, á meðan við erum svona ófullkomin sjálf og treystum okkur ekki til að bjóða náunganum jafnan hlut, þá verður ójafnvægið. (Ekki fara í sektarkenndina eða ásökun á hina .. við erum bara mannleg). – Fyrst er að sjá hvað er að og síðan er kannski agnarsmár möguleiki á að fara að breyta. –
Við byrjum á að breyta okkur sjálfum, ná innra flæði, ná innra jafnvægi og ró. – Prófa að elska alla skilyrðislaust og óska öllum hamingju og ástar. – Finna orkuna í sjálfum okkur hvernig hún breytist, og ef þetta gengur vel þá smitar það út frá okkur.
Skilyrðislaus ást, skilyrðislaus elska og skilyrðislaus hamingja.
Þá er bikarinn barmafullur og lífsfyllingu náð. – Í bikarinn er flæði inn og út – „áin er djúp og breið og hún rennur til mín og hún rennur til þín.“ .. Tárin okkar eru gjöf Guðs og merki þess að losna sé um flæðið. – Við tökum inn tilfinningar og við birtum þær með hlátri eða gráti, sorgin og gleðin verða þannig systur sem styðja við flæðið. – Milli þessara systra þarf að ríkja jafnvægi, alveg eins og í heiminum öllum. – …..
„The greatest wisdom is in simplicity. Love, respect, tolerance, sharing, gratitude, forgiveness. It’s not complex or elaborate. The real knowledge is free. It’s encoded in your DNA. All you need is within you. Great teachers have said that from the beginning. Find your heart, and you will find your way.“
Úr speki Maya indjána.
„Guðs ríki er innra með yður.“
Úr Biblíu kristinna manna.
Set hér í lokin eitt af uppáhalds ljóðunum mínum, sem ég finn styrk í þegar ég á erfitt eða líður illa. – og segi bara takk. –
Eigi stjörnum ofar
á ég þig að finna,
meðal bræðra minna
mín þú leitar, Guð.
Nær en blærinn, blómið,
barn á mínum armi,
ást í eigin barmi,
ertu hjá mér, Guð.
Hvar sem þrautir þjaka,
þig ég heyri biðja:
Viltu veikan styðja,
vera hjá mér þar?
Já, þinn vil ég vera,
vígja þér mitt hjarta,
láta ljós þitt bjarta
leiða, blessa mig.
(Sigurbjörn Einarsson)
Messa eins og gott rauðvín .. og sorg eftir skilnað
Það eru engin „short-cuts“ fram hjá því sorgarferli sem hefst hjá fólki við það að skilja við maka sinn. Hvort sem það er eftir skilnað eða annan missi – en það sem fólk sem hefur skilið þarf helst á að halda er að fólk skilji að það er að ganga í gegnum sorg, – og það gera helst þau sem hafa verið í sömu eða svipuðum sporum. –
Þau sem hafa misst maka við dauða, eiga e.t.v. erfitt með að ímynda sér að það sé svona mikil sorg að skilja, en jú – það er svo sannarlega makamissir – og við það bætist oft höfnun og trúnaðarbrestur. – Það er þó alltaf varhugavert að bera saman eina sorg við aðra, og sorg eins við sorg annarra. –
Öll sorg, og allar tilfinningar þurfa á viðurkenningu að halda. – Það jákvæða við skilnað er að enginn deyr, börnin eiga báða foreldra enn – en hér er oft um annars konar dauða að ræða – alltaf dauða þess sem var, og stundum dauða trúnaðartraustsins.- Það er mun fleira sameiginlegt með sorginni eftir skilnað og dauða heldur en sem aðgreinir og sorgarferlið er því hið sama eða a.m.k. mjög svipað. –
Ekkjan eða ekkillinn á samúð skilda og hinn fráskildi eða fráskilda á samúð skilda. – Jafnvel þó að það hafi verið að eigin „ósk“ – Það fer engin/n af stað í hjónaband með það fyrir augum að óska sér að skilja. – Það er eitthvað sem fer svo hörmulega úrskeiðis. – Við syrgjum þann sem velur að enda líf sitt á sama hátt og við syrgjum þann sem deyr án þess að hafa um það val. –
Öll sorg á skilið samúð okkar og virðingu. –
Þegar ég skildi eftir 22 ára samveru og 20 ára hjónaband í september 2002, flutti ég burt úr húsinu okkar. – Skýringum fyrir því held ég fyrir sjálfa mig. – Við ákváðum síðan að halda jól og áramót saman með börnunum okkar sem voru á unglingsaldri, en eftirfarandi ljóð skrifaði ég eftir upplifun mína að koma heim upp úr miðnætti á gamlárskvöld:
Einmana kom að kvöldi heim í ókunna íbúð
Jólin voru úti og gamlárskvöldið líka, en ekkert var inní mér nema tómarúmið
Börnin heima í gamla húsinu í bólunum sínum með tárvot augu og söknuðu þess sem var
Ég skreiddist upp í tóma-rúmið og kveikti á sjónvarpinu til að freista þess að gleyma, en dagskráin var búin en ótrúlegt en satt: í sjónvarpinu var spilað lagið:
„Don´t wanna live – all by my self“ ……..alveg eins og í bíómynd
Ég grét og hló og grét og hló og grét ennþá meir og hélt að hjartað myndi bresta
Einhvern veginn tókst mér að sofna og vaknaði inn í bjartan nýársdag
Rölti upp Skólavörðustiginn og fór í messu sem var eins og gott rauðvín
Friður fyllti hjartað og blés í það lífi og ég fann vonina koma með nýja árinu
Öll él birtir upp um síðir
„Ég óska þess heitast að sjá mömmu mína oftar glaða“ ..
Endurbirtur pistill, en ég skrifaði þennan 4. mars 2012.
Ég horfði á þáttinn um Sundhöllina nýlega þar sem fylgst var með fullorðnum manni, Kjartani. – Myndin var hæg en fangaði hugann og sýndi lífið eins og það var. Fólk með stóra og litla drauma. Venjulegt og óvenjulegt fólk. – Ég tengist sundhöllinni reyndar tilfinningaböndum, þar sem mamma starfaði þar þegar ég var lítil stelpa og á sjálf margar nostalgískar minningar þaðan. – Í viðtalinu við Kjartan kom fram að hann hafði misst einkason sinn, Jón Finn Kjartansson, en þar var um að ræða ljúfan dreng sem hafði farið á undan, farið á undan í blóma lífsins. – Mynd þessa drengs hefur fylgt mér.
Ég fann um hann minningargreinar, og í einni þeirra, sem systir hans skrifar er þetta fallega ljóð:
Þú hvarfst á braut með fangið fullt af blómum
að fagna jörð, er virtist björt að sjá,
en gættir ei að myrkum manna dómum,
er meiða saklaus bros á ungri brá.
Því var það svo, að veröldin þig grætti,
þó víst þú kysir bros í tára stað.
En hugur þinn, er ávallt góðs eins gætti,
gat ei komið brosum sínum að.
(Rúnar Hafdal Halldórsson, „Sólris“.)
Við þekkjum flest einhvern sem hefur valið að fara á undan.
Ég kalla það að fara á undan, þegar við styttum þessa lífsvist. – Ég þekki fólk, og hugsa til þessa fólks, og jú ég tárast. – Yfirleitt eru þetta svo fallegar sálir, „viðkvæm blóm“ – sem þrífast illa í okkar vitskertu veröld. – Veröldin er nefnilega þeirrar gerðar að hún ýtir okkur fram og til baka og út úr jafnvæginu okkar. – Stundum svo langt út fyrir að við erum komin yfir hættumörkin, alveg langt, langt. –
Það er vont, og í raun óbærilegt fyrir aðstandendur og vini sem sitja eftir og við megum ekki ásaka neinn. Hvorki okkur sjálf né ferðalanginn. – Það særir hann og það særir okkur. Það fór sem fór, – við snúum ekki við tímanum en við lærum af þessu eins og öðru. Skóli lífsins er vissulega strembnari en nokkur skóli. –
Hjálp og takk, eru orð sem Paulo Coehlo rithöfundur segir að séu þau tvö orð sem við þurfum að kunna til að týnast aldrei. –
Ég held að það láti mjög nærri lagi. – Þegar við yrðum ekki líðan okkar nógu skýrt – þá er ekki víst að einhver viti hvernig okkur líður eða finni okkur. Að biðja um hjálp er t.d. að láta vita um aðstæður sínar, – við þekkjum það að sumir geta ekki beðið um hjálp, heldur henda sér frekar á brún hengiflugsins og vonast til að einhver sjái. – Vonast til að einhver viti án þess að segja „hjálp.“ En við erum ekki ofurmannleg og eigum ekki að gera ofurmannlegar kröfur á okkur né aðra.
Við höfum flest verið á þessum stað, – það er að segja að þrá að vera séð og fá athygli. –
Það er vonleysið sem rekur fólk alla leið fram af bjargbrúninni. Þegar sýnin hverfur sjónum eða þegar skömmin fær valdið. –
Það er mikilvægt að muna það að veröldin sem er skökk, en ekki við.
Það er gott að vita það að þau sem farin eru vilja ekki að við þjáumst þeirra vegna, það er það síðasta sem þau vilja. Þau vilja að við séum hamingjusöm og höldum áfram á okkar ferðalagi, og þau vilja láta vita að þau eru komin í nýtt ferðalag og við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þeim. Þau elska okkur, þykir vænt um okkur og biðja okkur um að fyrirgefa sér og sleppa. –
Við hittumst fyrir hinum megin, við þurfum bara að vera þolinmóð og lifa í því trausti. – Njóta lífsins okkar og samferðafólksins sem við höfum núna, því það gæti verið farið einn daginn og þá værum við farin að sakna þeirra sem við höfum núna. –
Horfum ekki langt yfir skammt, horfum heim til okkar, við munum öll sameinast aftur og aftur, við lifum öll í hvoru örðu og með hvoru öðru. – Lítil börn fæðast og eru með persónuleika þeirra sem farin eru, það er ekkert skrítið 😉 ..
Ég held það sé ekki mikill munur á þeim sem velja sér að fara og þeim sem velja sér ekki að fara. – Oft höfum við lifað þannig að óhjákvæmilega endar það með því að við flýtum fyrir okkar dauða. –
Við reykjum þó að á sígarettupakkanum standi „Tóbak drepur“ –
Við borðum óhollt og of mikið þó að við séum komin í lífsættulega yfirvigt ..
Við lifum á alls konar krabbameinsvaldandi fæði og förum með batteríin okkar og varaorkuna líka, þó að við vitum að stress stytti lífi okkar. –
Teljum það jafnvel til dyggða að gera hálf út af við okkur i vinnu. –
Ég er ekki að benda, ég er ein af „okkur“ – Ég hef verið í svona sjálfseyðandi aðstæðum oftar en ekki. – Farið langt yfir andlegt og líkamlegt þanþol. – Brunnið út í vinnunni vegna þess að ég var svo „ómissandi“ – og þegar ég var greind með sortuæxli og þurfti að vera frá í stuttan tíma, spurði ég lækninn fyrst af öllu hvort ég þyrfti að vera mikið frá vinnu.
Það var hann sem sagði þá: „Þú veist að í kirkjugörðum heimsins hvílir ómissandi fólk“ …Þessi sami læknir sagði reyndar: „Kvíðinn og áhyggjurnar geta gert þig veikari en krabbameinið“
– Hann vissi hvað hann var að segja. –
Dæmum ekki þá sem taka eigið líf, við erum öll í sama pakkanum. Jafnvel þó að við séum að hugsa vel um okkur, lifa eins heilbrigt og okkur sé mögulegt, dæmum ekki. –
Virðum hvert annað, látum þau sem eru í kringum okkur vita að við erum með opinn faðminn, að við séum tilbúin í að hlusta. – Stundum er það nóg, en stundum er ekkert sem við ráðum við og þá er það ekki lengur í okkar mætti, ekki frekar en að ætla okkur að stöðva vindinn þegar hann blæs. –
Við verðum að lifa í sátt við vindinn, og reifa seglin eða þenja (eða hvað sem þetta er kallað á sjóaramáli) eftir því sem vindur blæs og hvert við stefnum. – En vindinum getum við aldrei breytt. Við verðum bara lúin ef við ætlum að halda áfram að rembast við það. –
Sættumst við það sem er, eftirsjá og gremja er barátta við vindinn. – Virðum það sem er og gerum það að okkar stað til að halda áfram en ekki til að fara til baka. – Leiðin er fram á við. –
Þessi færsla er innblásin af fólki sem mér var kært, og af fólki sem ég veit að ykkur var og er kært. – Sum voru komin hálfa leið á bjargbrúnina og sum fóru alla leið.
Sendum þeim öllum hlýju, kærleika og ljós, en ekki halda aftur af þeim með söknuði okkar. –
Ég minnist þess úr samtali við ungling sem átti erfitt og foreldrarnir höfðu áhyggjur af honum, en hann sagði:
„Ég óska þess heitast að sjá mömmu mína oftar glaða“
„Þú hvarfst á braut með fangið fullt af blómum
að fagna jörð, er virtist björt að sjá,
en gættir ei að myrkum manna dómum,
er meiða saklaus bros á ungri brá.“
„En hugur þinn, er ávallt góðs eins gætti,
gat ei komið brosum sínum að.“
Hleypum brosum þeirra að NÚNA.
Karlar sem drekka kaffi ..
„Mér líst ekkert á hve ég, kornungur maðurinn, er að verða skjálfhentur. Held þetta stafi af ójafnvægi í kaffidrykkju. Þarf greinilega að stórauka inntökuna!“ skrifaði Kristinn Theódórsson á vegginn sinn á Facebook. –
Baldur Hermannsson svaraði:
„Hafðu vit á því að hætta þessum ósóma, annars skaðarðu bara heilsuna. Svo er gott að láta eftir sér nokkra smábolla vikulega af rótsterku espresso eða mokka, þá er kaffidrykkjan orðin nautn en ekki sjúklegur ávani.“
Í raun segja þessi tvö innlegg allt sem þarf að segja. – Þau endurspegla svo margt í lífi okkar, – um mikilvægi þess hvernig við umgöngumst ekki bara kaffi, heldur allan mat og lífið allt. –
Smá „hugsað upphátt“ í framhaldi af þessu og pælingar í framhaldi um skömm og innri rödd. –
Forsenda þess að öðlast fullnægju er að njóta,
ef við njótum ekki verðum við aldrei fullnægð eða södd.
– Forsenda þess að njóta er að vera sátt við það sem við erum að gera.
– Þegar við erum í fíkn eða þráhyggju erum við ekki í sátt heldur á flótta.
Flótta frá sögu okkar, flótta frá okkur sjálfum. –
– Óyrtar og/eða bældar tilfinningar leiða til fíknar eða flótta. –
Af hverju ættum við að flýja okkur sjálf? – Af hverju ættum við að forðast það að njóta og (upp)lifa?
Leyfum okkur að gleðjast, leyfum okkur að syrgja og höfum hugrekki til að tala um skömm sem hrærist innra með okkur, því skömmin hatar að láta tala um sig, þá fer hún að missa vald sitt (Brené Brown). –
Skömmin hindrar okkur í að sjá hver við erum og gerir okkur lítil. –
What a liberation to realize that the „voice in my head“ is not who I am. Who am I then? The one who sees that. Eckhart Tolle
Þegar við sjáum að það erum við sjálf sem viðhöldum skömm, eða útrunnum hugsunum (jafnvel um skömm), – að við sjálf erum orðin neikvæða röddin sem talar til okkar. Þegar við erum farin að sjá hvernig við erum að næra sársauka okkar og/eða viðhalda honum, lifa fortíð getum við farið að breyta og hætt að næra hann. –
Þrír bollar af þunnu kaffi drukknir án vitundar fylla okkur af engu, á meðan að einn bolli af espresso drukkinn af nautn og með vitund fyllir okkur af vellíðan. –
Wake up and smell the coffee! –
Ath! – Það er ekki aðalmálið hvað við erum að borða, drekka eða gera, heldur hvernig við förum að því. – Njótum. –
p.s.
ef þú vilt lesa meira um að hvernig við njótum lífsins (eða ekki) þá smelltu
Er hægt að njóta (kyn)lífsins og lesa Moggann á sama tíma? ..
Ímyndaðu þér að þú sért að elskast með maka þínum og lesa um leið nýjustu fréttir í Mogganum, Fréttablaðinu eða DV – í leiðinni. Eða verið að skipuleggja næstu skíðaferð í huganum. Gætir þú notið kynlífsins? –
Hvar er hugur þinn, hvar er líkami þinn, hvar ert þú?
Ertu í líkama þínum eða í fólkinu í fréttunum?
Það sama gildir um að borða mat og lesa, horfa á sjónvarp, vera í tölvunni o.s.frv. Ef við erum að gera eitthvað annað en að borða erum við ekki að njóta. –
Maki okkar á skilið fulla athygli og við sjálf eigum skilið fulla athygli – okkar sjálfra.
Geneen Roth, höfundur bókarinnar “Women, Food and God” – segir að hvernig við borðum segi allt um hvaða jafnvægi við höfum í lífi okkar. –
Jafnvægi eða æðruleysi er grundvöllur farsældar okkar. – Það er eðlilegt að sveiflast og það þýðir ekki að lífstakturinn eigi að vera flatur. Hann Á að sveiflast en þegar hann fer of langt upp eða of langt niður erum við komin út fyrir hættumörk. Það má sjá þegar líkamsþyngd er farin að hafa áhrif á heilsufar okkar, í báðar áttir. Of feit eða of mjó. – Andlega getum við líka verið of feit eða of mjó. – Við getum verið með ofstjórn eða vanstjórn. –
Öfgarnar ganga í báðar áttir og þá erum við komin að hófsemdinni, eða meðalveginum. Meðalvegurinn er ekki þröngur, heldur eins og áður sagði, þar eiga að vera sveiflur en ekki dýfur og kúfar – ökkla eða eyra. – Best að lifa u.þ.b. við miðju og sveiflast mátulega. –
Það best er auðvitað að njóta þess sem er. – Það er hluti af því að lifa í núinu.
Þegar við erum að borða að vera viðstödd, veita matnum athygli, borða hægt, njóta hvers munnbita, finna bragð, áferð o.s.frv. –
Hvernig við borðum er síðan birtingarmynd af því hvernig er farsælast að lifa, þ.e.a.s. að njóta stundarinnar, eins og svo margir hafa sagt í gegnum aldirnar, en við bara lesum, kinkum kolli en gerum svo annað, kannski vegna þess að við höfum tileinkað okkur annað. Við höfum ekki tileinkað okkur að njóta.
Ef við erum að leika við börnin okkar og hugsa um bankareikninginn erum við ekki að njóta barnanna. Ef við erum að hitta vini okkar, en að óska þess að við séum í sólarlandaferð á meðan erum við ekki að njóta samverunnar. Ef við erum að lesa blöðin á meðan við borðum erum við ekki að njóta matarins, svo ekki sé minnst á fyrirsögn þessa pistils! ..
Nú hef ég verið að leiðbeina í námskeiði undir heitinu “Í kjörþyngd með kærleika” í allnokkurn tíma. Konurnar sem hafa mætt hafa kennt mér mikið og ég sjálf lært af hverju námskeiði. – Markmiðið er frelsun frá vigt og auðvitað að komast í kjörþyng og ekki síst andlega kjörþyngd, en það er forsenda hinnar líkamlegu. –
Þetta er ekki kúr, ekki fix, og þrátt fyrir heitið á námskeiðinu er stærsta keppikeflið ekki að komast í kjörþyngd, a.m.k. ekki á röngum forsendum. – Kjörþyngdin er í raun aukaatriði.
Markmiðið er að fara að njóta lífsins. Njóta þess sem við borðum og njóta lífsins alls. Komast að sínum kjarna, ná sátt við sjálfa/n sig – en sáttin er besti byrjunarreiturinn, og reyndar er sáttin allir reitirnir upp frá því. –
Ég kem ekki allri hugmyndafræðinni í þennan pistil, – en hún er á leið í bók, það er augljóst! –
Niðurstaðan er: Besta leiðin til að komast í kjörþyngd er að fara að njóta, njóta þess sem við erum að gera, veita því athygli og vera í meðvitund. – Hvort sem við erum að lesa Moggann eða stunda kynlíf, bara ekki gera bæði í einu.
Súkkulaðimoli sem við veitum athygli og bráðnar í munni hægt og rólega, er miklu betri en heil plata af sama súkkulaði sem við gleypum í okkur í meðvitundarleysi. –
Við borðum stundum í veislum eins og við munum aldrei fá að borða aftur. Búið er að nostra við veitingar, laða fram rétta bragðið í kökurnar og skreyta, setja ferskar rækjur í rækjusalatið og krydda. – Svo hlöðum við þessu öllu saman á einn disk og rækjusalatið og rjóminn af kökunni renna saman og svo er allt borðað á methraða og yfirleitt önnur ferð farin, kannski með samviskubit eða skömm í maga. – Skömmin er krabbamein hugans eins og ég skrifað um í samnefndum pistli, svo ekki bætir í! –
Ég mæli reyndar með því að við losum okkur við allt sem heitir skömm, því hún brýtur bara niður en byggir aldrei upp. – Skömmin er líka ein stærsta orsök fíknar og að við einmitt upplifum okkur aldrei nóg eða leitum út fyrir okkur en ekki inn á við.
En hvað um það – Þetta er ekki spurning um magn heldur gæði. –
Kvöldstund í fjörunni í Hvalfirði þar sem við tökum inn sólarlagið, öndum að okkur andvaranum og jafnvel stingum tánum í sjóinn – getur gefið okkur meiri lífsfyllingu en við fáum við að keyra hringinn í kringum landið ef við stoppum aldrei og virðum ekki fyrir okkur náttúruna. – Við verðum miklu fyrr búin að fá nóg ef við njótum. Við getum keyrt marga hringi í kringum Ísland og aldrei fengið fullnægju, þegar við erum í raun týnd okkur sjálfum. –
Eftir hversu fljótt við áttum okkur á því hvað er nóg, að fleiri hringir, hvort sem það er í kringum landið eða á fingur, bæta ekki líf okkar – heldur hringur sem er heill og traustur og sem við getum notið. –
Hvað hindrar þig í að njóta? Er spurningin sem stendur eftir. –
Ég byrja með nýtt og endurskoðað námskeið, Í kjörþyngd með kærleika – Námskeið fyrir konur sem vilja fara að njóta.
Njóta ___________________ (Settu það sem ÞÚ vilt njóta á línuna. -)
Fyrirkomulagið er fyrirlestrar, hópavinna og hugleiðsla, auk sjálfstyrkingaræfinga.
Dagskrá:
Laugardagur 24. mars
13:00 Mæting og kynning
14:00 Fyrirlestur Frelsun frá megrun og kúrum
15:00 Pása
15:15 Fyrirlestur í formi íhugunar og hugleiðslu – perlan
16:00 Umræður og samantekt
17:00 Lok
Kaffi, te, hamingjuvatn og ávextir innifalið – og eitthvað óvænt! *hamingjuvatn= sódavatn.
Hámark 20 konur
Sex hópfundir 90 mín í senn á þriðjudögum (hægt að velja milli morgun- eða eftirmiðdagsfunda)
morgunhópur 10:00 – 11:30 eftirmiðdagshópur 17:30-19:00
(Drög að dagskrá)
Þriðjudagur 27. mars – æðruleysið, jafnvægið
Þriðjudagur 3. apríl – sáttin, samþykkið.
Þriðjudagur 10. apríl – kjarkurinn, hugrekkið
Þriðjudagur 17. apríl – vitið, viljinn.
Þriðjudagur 24. apríl – trúin, traustið
Þriðjudagur 1. maí – út í lífið a njóta
Verð fyrir námskeiðið er 25.900.- (greiða þarf námskeiðið fyrirfram, nema ef um annað sé samið, – greiðslukortaþjónusta. -)
Skráning opnar fljótlega á heimasíðu Lausnarinnar –
Nánari upplýsingar og ef þið viljið skrá ykkur beint hjá mér – sendið mér póst á johanna@lausnin.is eða hafið samband í síma 8956119
Þangað til mæli ég með “möntrunni” Ég elska mig, ég samþykki mig, ég virði mig og ég fyrirgef mér 😉
Hvað hefur hugrekki með heiðarleika að gera?
Ég hlustaði á mjög góðan fyrirlestur á ted.com, þar sem rannsóknarprófessorinn og fyrirlesarinn Brené Brown sagði sína reynslu og frá sínum rannsóknum á „Mætti berskjöldunar“ eða mætti þess að fella varnir. „Power of Vulnerability“ ..
Það er hægt að skoða margt í þessum fyrirlestri,og ég er búin að skrifa marga punkta, en það sem mér er efst í huga núna er það sem hún minntist aðeins á en það er hugrekkið, eða „courage“ ..
Íslenska orðið hugrekki bendir til hugans, en courage bendir til hjartans, en er komið af latneska orðinu cor, sem þýðir hjarta. Á frönsku er hjartað coeur. Úr enskunni þekkjum við svo orðið core og notar það fyrir kjarna.
En hugrekkið er eitthvað sem kemur frá kjarnanum, frá hjarta manneskjunnar. Það er þó umdeilt í andans fræðum hvort að kjarni hugsunar manneskjunnar sé í maganum (gut feeling) eða hjartanu (follow your heart). Kannski bara bæði og það skiptir ekki höfuðmáli.
En hvaða hugrekki er Brené Brown að tala um? Hún er að tala um hugrekkið:
– við að sætta sig við að vera ófullkomin
– við að leyfa sér að lifa,
– við að lifa eins og við viljum sjálf
– að lifa eins og við erum í innsta kjarna en ekki eins og utanaðkomandi vilja eða halda að maður vilji lifa
– að lifa eins og við erum í innsta kjarna, en ekki eins og við HÖLDUM að aðrir vilji að við lifum. (Sjá t.d. söguna um hjónin og rúnstykkið).
– til að meta sjálfa sig sem gilda manneskju
——–
Fólk sem er tilbúið að faðma sjálft sig fyrst og svo aðra, er hugrakkt, það óttast ekki að AÐRIR álíti það sjálfselskt!
Fólk sem er tilbúið að vera það sjálft, láta af því að vera það sem aðrir vildu að þeir væru.
– til að samþykkja varnarleysi sitt eða viðkvæmni sína.
Það þarf hugrekki til að ganga inn í erfiðar tilfinningar, við eigum það til að svæfa þær eða deyfa með neyslu, fá okkur tvo bjóra, rauðvínsglas, of mikið af mat. En málið er að það skilar okkur ekki hamingjusömum, heldur er skammgóður vermir (eins og að missa piss í skóna).
Til að geta upplifað hamingju, gleði, ást – þá þurfum við líka að hafa hugrekki til að ganga inn í andstæðuna; óhamingju, sorg, reiði o.s.frv. Það er það sem það þýðir að vera tilfinningavera.
Að fara inn í sorgarferli krefst því hugrekkis. Nýlega var grein þar sem var talað um að fólki væri gefið lyf við sorg. Það er ekki lækning, aðeins deyfing.
Hugrekki – er þá þor til að takast á við tilfinningarnar, horfast í augu við þær, vera sýnilegur þeim og fólki út á við. Jafnvel bera þær á torg, sem þótti mikið tabú hér áður.
Við þurfum að hafa hugrekki til að ganga inn í aðstæður, án þess að vita hver útkoman verður.
Ástæðan fyrir því að við oft höfnum ást er óttinn við að vera hafnað sjálfum, eða óttinn við að særa aðra. Það þýðir að við erum farin að setja óttann í forgang fyrir ástina. Hugrekki er að fara af stað þrátt fyrir óttann, þannig sigrumst við á honum. Útkoman verður bara að koma í ljós, en ef við stöðvum okkur vegna óttans verður engin útkoma og við lifum í stöðnun.
Það sem hér á undan kemur er blanda af mínum eigin hugrenningum og Brene Brown.
Hlustið endilega á Brene Brown (smellið á nafnið hennar). það er margt sem hægt er að læra af henni.
Fann svo þessa fallegu mynd af jörðinni sem hjarta – það er gott að hugsa til hennar sem hjartað sem slær fyrir okkur öll sem eitt.
Það er svo mikill léttir 😉 .. og að þurfa ekki alltaf að vita „hvað næst“ og hvernig fer þetta eða hitt. Það stöðvar mann í áskorunum sem okkur er ætlað að takast á við, aftengir okkur frá fólki sem okkur er ætlað að þekkja og kynnast. Við þurfum ekki, og eigum ekki, að vera alltaf að skammast okkar fyrir þetta og hitt. „Skammastu þín“ er eitt það ljótasta sem hægt er að segja við fólk, hvað þá við okkur sjálf.
Þú ert PERLA
Eftirfarandi pistil birti ég upphaflega á Pressunni í júní 2011. –
Við munum eflaust flest eftir því sem börn þegar einhver spurði, “viltu vera memm” og hjartað tók örlítinn kipp af gleði, yfir því að einhver sóttist eftir vináttu okkar.
Það er misjafnt hvort að við sækjumst eftir vináttu eða til okkar er sótt. Oftast eru þeir sem sækjast eftir vináttu, hugrakkari, því margir eru hræddir við höfnun, – “hvað ef að hinn segir nú nei”!.. Jafnvel þó að höfnunin hafi lítið sem ekkert með þig að gera, hún sé af ástæðum sem eru ekkert persónulegar. Skemmst er nú að líta til rafrænnar vináttu, þar sem sumir jánka öllum sem banka á vegginn, en aðrir vilja bara hafa sinn þrengsta hring sem fésbókarvini.
Það fer eftir forsendum okkar á miðlinum. Höfnun hefur því sjaldnast neitt með þig persónulega að gera. Ástæðan fyrir þessum skrifum mínum var hugleiðing út frá umræðum um nemendur og skóla, mikilvægi þess að tilheyra hópi.
Við höfum reyndar öll þörf fyrir að tilheyra hópi.
Í félagsfræðinni er talað um félagsleg festi, og þegar ég var að útskýra það fyrir nemendum mínum, – teiknaði ég mynd af perlufesti, þar sem hver perla væri hópmeðlimur. Hópurinn getur verið fjölskylda, vina- eða kunningjahópur, félagasamtök, íþróttafélag eða hvers konar hópur sem maður tilheyrir. Ekki er verra ef hópurinn á sameiginlega reynslu.
Hvað áttu margar svona (perlu)festar í þínu lífi?
Það virðist skipta okkur miklu máli að tilheyra hópi, að vera samþykkt af hópi og eiga samskipti innan hóps. Samvera er andheiti orðsins einvera. Í samveru nærum við þörfina til að þiggja og gefa.
Nemendur sem eru félagsfælnir, eða eiga erfitt með að nálgast aðra að fyrra bragði, þurfa samt sem áður á samveru að halda. Þess vegna er betra fyrir slíka aðila að vera í bekkjarkerfi en í opnu kerfi, þar sem þarf að hafa fyrir því að nálgast aðra.
Kunningjahópar virðast oft myndast í gegnum sameiginleg áhugamál eða markmið. Kannski leitum við að þeim sem eru líkust okkur og tengjumst best.
Vegna þess að við erum mismunandi tengjumst við fólki á mismunandi hátt. Sumum löðumst við að umsvifalaust, eins og við höfum alltaf þekkt þau, en önnur virka næstum eins og rafstraumur á okkur og við hrökkvum í burtu. Oftast byggir þetta á okkar eigin viðhorfi, viðmóti, sýn, sjálfsöryggi og því að vera tilbúin að taka náunganum eins og hann er. Þegar okkur finnst allir eða flestir orðnir leiðinlegir eða fúlir, þá er kominn tími til að líta í eigin barm. (Mjög mikilvæg lexía!) Kannski erum við bara sjálf ómöguleg og illa upplögð?
Grundvallarreglan er gamla klysjan um súrefnisgrímurnar í flugvélinni, anda að sér fyrst og sinna svo barninu. Súrefnislaus erum við einskis nýt og getum ekkert gefið af okkur. Við getum kannski gefið í stutta stund en verðum svo andlaus. Þess vegna þurfum við að spyrja okkur sjálf fyrst “viltu vera memm” – vera vinur eða vinkona okkar sjálfra, og þegar við höfum játast okkur sjálfum og eignast eigin vináttu verður hitt miklu auðveldara, við verðum miklu hugrakkari og við eigum auðveldara með að deila vináttu okkar. Þó einhver vilji ekki vera memm, þá blásum við á það, “Their loss” og höldum áfram að hitta aðra sem eru á okkar línu, eða eigum við að segja sem passa í okkar perlufesti? Þú ert dýrmæt og náttúruleg perla, farðu vel með perluna þína og kastaðu henni ekki fyrir svín. Veldu þér félagsskap sem samþykkir þig eins og þú ert.
„The most abrasive sand creates the most radiant pearls…“
Hvað vilja börnin? –
Eftir að ég skrifaði pistilinn um að við værum ekki skuldir okkar, þ.e.a.s. að við gætum verið hamingjusöm blönk, áttaði ég mig á því að í þeim pistli var ekki minnst á börn. Við erum svo sannarlega búin að gefa börnunum þau skilaboð að þau geti varla verið hamingjusöm nema að eiga x magn af því sama og hinir eiga, eða klæðast fötum eins og hinir. – Þetta er þó bara samfélagslega mótunin, EN ekki lögmál. –
Höfum við í raun spurt börnin hvað þau vilja? – Er það aðalmálið að eignast sem mest dót, eða hvað þurfa þau í raun og veru?
Ég á nokkrar reynslusögur í mínum fórum, sem hafa kennt mér að börnin eru ekki alltaf ánægðust yfir því sem er keypt handa þeim, heldur einmitt yfir tímanum sem við verjum með þeim.
Foreldrar eru langtímum saman að þræla sér út fyrir að kaupa …..hvað? –
Er eitthvað þarna sem má skera niður?
Það er auðvitað erfiðast að hugsa til fjölskyldna með börn – sem kannski geta ekki veitt þeim það sem þau eru vön, en öll þurfum við að íhuga gildi og virði lífsins.
Ég var Au Pair þegar ég var 17 ára og fór stundum með börnin út í skóg í „picnic“ eins og ég kallaði það. Elsta barnið, 5 ára, kallaði það pinkink. Í þessu pinkink setti ég vatn á flöskur og tók kannski með matarkexpakka.
Einn sunnudaginn fór síðan öll stórfjölskyldan í dýrindis skemmtigarð, en það tók langan tíma að keyra þangð með tilheyrandi óþolinmæði í bílnum. Við komumst í garðinn þar sem börnin fengu allt sem hugurinn girntist – og voru þau búin að úða í sig nammi og fara í mörg leiktæki. Um miðjan dag leit ég á þann 5 ára þar sem hann sat með skeifu og stóran ís sem lak niður eftir hendinni á honum. Ég spurði hann hvað væri að – þá sagði hann “ „þetta er ekkert gaman – það er miklu skemmtilegra i pinkink“ ..
Hamagangurinn, ofgnóttin og lætin í garðinum hentuðu þessum litla strák ekki eins vel og róin útí skógi, þar sem hann fékk að heyra sögur og drekka vatn af stút og snæða matarkex. 😉
——-
Við bjuggum í Garðabæ þegar að börnin voru lítil, það var á þeim tíma að oft varð rafmagnslaust og þegar að rafmagnið fór, fór hitinn hjá okkur líka því það var kynt með loftblæstri. –
Þegar rafmagnið fór, þjöppuðum við okkur saman fjölskyldan, kveiktum kertaljós og töluðum saman, sungum eða spiluðum. – Það færðist einhver ró yfir heimilið, þegar að slökkt var á öllum raftækjum og ljósið takmarkað. –
Það var síðan einn daginn, þar sem ég stóð með ryksuguna á fullu í eldhúsinu – að elsta dóttir mín (þá um 12 ára gömul) kom heim úr skólanum og stundi upp „Oh, ég vildi að það væri rafmagnslaust!“ –
Ég horfði spyrjandi á hana en hún svaraði að bragði: „Þá erum við svo mikið saman, og syngjum og svoleiðis“ .. 😉
Ég gleymi aldrei þessari sögu, – ég hef líka orðið vör við það að t.d. biðja börnin oft um að við horfum á sjónvarpið með þeim og skýrum út og þeim finnst það skemmtilegra heldur en að vera ein. –
Ömmur og afar hafa oft áhyggjur af því að geta ekki gefið börnum dýrar jóla-eða afmælisgjafir. Besta gjöfin er oft (og ekki síður fyrir foreldrana) að gefa börnunum tíma með ömmu og afa (nú eða frænku eða frænda) og fara með þau á róló, lesa fyrir þau eða bara hvað sem er. – Tími og samvera er það verðmætasta fyrir börnin. –
Svo ég held að það sé hálfgert sjálfskaparvíti ef við erum búin að koma börnunum upp á það og venja þau við að hamingja þeirra felist í merkjaklæðnaði, dóti eða hversu oft þau hafi farið til útlanda. Þarna erum við að ala upp fólk sem hengir hamingjuna sína á hið ytra. –
Öll þurfum við það sama og börnin, tíma og samveru. Við erum svolítið týnd í þessum gnægtarheimi, heimi sem stuðlar að aðgreiningu í stað meiri samveru.
Við getum í raun séð dótið okkar (og allt sem er í geymslunum) sem vegg á milli okkar og annars fólks og jafnvel barnanna okkar. Var dótið sem nú er komið í geymslu þess virði að fórna svona miklum tíma í vinnu? – Ég veit ekki hversu marga krakka ég hef talað við sem þrá bara mest meiri samveru, sérstaklega við feður sína. –
Að fara með pabba í sund eða út að leika á snjóþotu en þyngdar sinnar virði í gulli. – Nú eða mömmu – eða báðum saman.-
Við þurfum að geta fætt og klætt börnin, en íhugum hvort að þau þurfi raunverulega allt þetta dót sem skapar reyndar oft mikið kaos í þeirra lífi, bæði andlegt og raunverulegt og herbergin eru á kafi í rusli /dóti og fötin í stöflum. –
Við getum alveg heimfært þetta upp á okkur fullorðin og ég á mig, við konur verðum að hætta að segjast ekki hafa neitt til að fara í – þegar fataskápurinn er í raun fullur! ..
Íhugum hverjar er alvöru og hverjar er gerfiþarfir.
Í lokin, orðið sem er lykilorð í mennskunni er orðið ATHYGLI –
Börnin þurfa athygli – fullorðnir þurfa athygli – og við þurfum að veita sjálfum okkur athygli og því sem við erum að gera, lifa meðvituð og lifandi en ekki fljóta meðvitundarlaus með straumnum. –
Það tekur á að breyta, en það er ekki hægt að breyta nema við veitum athygli því sem við erum að gera núna. –
Vöknum því – fyrir börnin og fyrir okkur sjálf.


